Sigmundur Davíð: „Þetta finnst Samfylkingunni fyndið“ 15. júní 2009 14:13 Sigmundur Davíð var ómyrkur í máli á Alþingi nú rétt áðan.
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sagði á Alþingi nú fyrir skömmu að hann ætli að leggja fyrir þingið stjórnarfrumvarp um skuldbindingar ríkisins vegna Icesave innstæðna við Breta og Hollendinga. Hann býst við að fá samþykki meirihluta Alþingis en því eru þingmenn stjórnarandstöðuflokkanna ekki sammála. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði að aldrei hafi verið til nægur gjaldmiðill á Íslandi til að standa undir slíkum skuldbindingum sem ríkisstjórnin hefur komist að niðurstöðu um fyrir hönd þjóðarinnar. „Þetta er nákvæmlega það sem hefur verið gert við þriðja heims og austantjaldsríki í gegnum tíðina. Hér er verið að lengja í hengingarólinni hjá okkur Íslendingum og koma okkur á stall með þessum þjóðum. Það er allt annað fyrir ríki að skuldsetja sig í eigin mynt en erlendum myntum," sagði Sigmundur Davíð og var formaðurinn ómyrkur í máli í ræðustólnum. Á þessum tímapunkti heyrðust hróp úr þingsalnum frá þingmönnum Samfylkingar og brást Sigmundur Davíð við með því að berja í ræðupúltið og segja, „Þetta finnst Samfylkingarmönnum fyndið, þeim finnst fyndið að verið sé að knésetja þjóðina.“ Steingrímur J. Sigfússon svaraði formanni Framsóknarflokksins og sagði meðal annars að Ísland væri ríkt og þróað land í kreppu og ekki hægt að bera það saman við þriðja heims og austantjaldsríki
Mest lesið Banaslys á Hvolsvelli Innlent Vinum hans ekki litist á blikuna Innlent Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Innlent Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Innlent Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Innlent Tekur stóra skammta af magnýl og leiðist að hreyfa sig Erlent Fyrsta fórnarlambið nafngreint Erlent Allt sem þú þarft að vita um nýja kílómetragjaldið Innlent Þurfi að sannfæra flokkinn Innlent Segjast hafa sviðsett aftöku og hirt verðlaunaféð af Rússum Erlent Fleiri fréttir Fjögur vilja tvö efstu hjá Viðreisn Kristín vill fyrsta sætið Allt sem þú þarft að vita um nýja kílómetragjaldið Þremur þjófum vísað úr landi Funda í janúar í kjaraviðræðum flugstétta Hlutfall fínasta svifryksins áberandi hátt á nýársnótt Telur nær öruggt að fleiri hundar muni týnast Dæmi um að fólk hafi flúið upp í sveit Þurfi að sannfæra flokkinn Sex tíma leikskóladvöl nú gjaldfrjáls í Hafnarfirði Neytendur eigi meira inni eftir eldsneytislækkanir á nýju ári Hafna beiðni manns sem braut kynferðislega á stjúpdóttur Banaslys á Hvolsvelli Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Mikill meirihluti vill lögfesta rétt barna til leikskólavistar Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Eldur í bíl við Breiðhellu Vinum hans ekki litist á blikuna Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Hitnar undir feldi Péturs Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi „Líðan barna nú mun móta sögu og styrk Íslands á næstu árum“ Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í framkvæmd Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Sjá meira