Framsókn styður líklega Seðlabankafrumvarp 3. febrúar 2009 12:45 Siv Friðleifsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins.
Siv Friðleifsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, telur líklegt að framsóknarmenn muni styðja frumvarp ríkisstjórnarinnar um skipulagsbreytingar í Seðlabankanum miðað við það sem komið hefur fram í fjölmiðlum um innihald þess. Hún bendir á að framsóknarmenn hafi áður lagt fram svipað frumvarp. Siv segir að ekki sé um pólitískar ofsóknir að ræða. Í bréfi sem Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sendi bankastjórum Seðlabankans í gær er farið fram á að þeir biðjist lausnar frá embætti. Samkvæmt Fréttablaðinu í dag hefur Jóhanna óskað eftir svari fyrir næstkomandi fimmtudag. „Þannig að þegar frumvarpið kemur munum við að sjálfsögðu skoða það en ég á von á frekar jákvæðum tóni okkar framsóknarmanna í þessu máli," sagði Siv í samtali við fréttastofu.Ekki pólitískar ofsóknir á hendur Davíð Aðspurði hvort um nauðsynlegar breytingar eða pólitískar ofsóknir á hendur Davíð Oddssyni sé að ræða svaraði Siv: „Ég held að það sé nauðsynlegt að gera breytingar á Seðlabankanum. Þannig að þegar frumvarpið lítur dagsins ljós þá munum við fara yfir það og mér heyrist að það sé í anda þess máls sem Höskuldur Þórhallsson og fleiri í Framsóknarflokknum höfum nú þegar lagt fram í þingið." Ekki sé um pólitískar ofsóknir að ræða, að mati Sivjar. „Nei ég tek ekki undir orð Halldórs Blöndals um það. Ég hef heyrt að hann hafi tekið þannig til máls á opinberum vettvangi og ég tek ekki undir það."Einn faglega ráðinn bankastjóri Ríkisstjórnin hefur áður lýst því yfir að hún vilji fara í skipulagsbreytingar í Seðlabankanum. Ráða á einn bankastjóra í stað þeirra þriggja sem nú eru starfandi. Gerðar verða faglegar kröfur til að koma í veg fyrir pólitískar ráðningar. Forsætisráðherra lagði frumvarpið fyrir ríkisstjórnina í morgun en það verður síðan kynnt þingflokkum Framsóknar, Vinstri grænna og Samfylkingar í dag. Gert er ráð fyrir því að frumvarpið verði lagt fram á Alþingi á morgun. Fréttastofa hefur ítrekað reynt að ná í bankastjóra Seðlabankans undanfarna daga án árangurs.
Tengdar fréttir Davíð hringdi í Jóhönnu en svaraði ekki hvort hann hyggist hætta Frumvarp um breytingar á skipulagi Seðlabankans var kynnt af Jóhönnu Sigurðardóttur á ríkisstjórnarfundi í dag og afgreitt til þingflokka stjórnarflokkanna og Framsóknarflokksins. 3. febrúar 2009 11:46 Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Fleiri fréttir Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Sjá meira
Davíð hringdi í Jóhönnu en svaraði ekki hvort hann hyggist hætta Frumvarp um breytingar á skipulagi Seðlabankans var kynnt af Jóhönnu Sigurðardóttur á ríkisstjórnarfundi í dag og afgreitt til þingflokka stjórnarflokkanna og Framsóknarflokksins. 3. febrúar 2009 11:46