Hafnfirðingar heimta einkaleyfi á jólaþorpi 28. nóvember 2009 06:00
Hafnarfjarðarbær hefur sótt um einkaleyfi á heitinu Jólaþorp og kvartað til Neytendastofu yfir fyrirhuguðum markaði samtakanna Miðborgarinnar okkar í Reykjavík. „Eftir langa þróunarvinnu varð það niðurstaðan fyrir sjö árum að kalla okkar fyrirbæri Jólaþorp. Við erum búin að leggja ómælt fjármagn og vinnu í að byggja upp þetta vörumerki þannig að það kom okkur óþægilega á óvart þegar við heyrðum af því að það ætti að setja upp sams konar fyrirbrigði í Reykjavík og undir sama heiti," segir Gunnar Axelsson, formaður menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðar. Gunnar segir að Reykvíkingar hafi ekki aðeins fengið nafnið að láni í Hafnarfirði. „Þar verða Grýla og Leppalúði - nákvæmlega eins og hjá okkur - og nú síðast sá ég að það höfðu bæst við álfar og huldufólk - sem er nú kannski dálítið sérhafnfirskt fyrirbæri. Og í kynningarefni þeirra er meira að segja samsvörun í orðalagi og jafnvel heilu setningarnar." Samtökin Miðborgin okkar njóta stuðnings frá Reykjavíkurborg. Jakob Frímann Magnússon, framkvæmdastjóri Miðborgarinnar okkar, segir málið hljóta að vera misskilning og eiginlega Hafnarfjarðarbrandara. Jólaþorp hafi áður verið sett upp í Reykjavík og víða um heim í bæjum, þorpum, sveitum og borgum. Enginn geti átt einkaleyfi á orðinu jólaþorpi. „Ég ætla ekki að spilla eigin jólaskapi né annarra með því að leiða hugann að þessu. Ég óska bara Hafnfirðingum gleðilegra jóla," segir Jakob. Gunnar segir að málarekstur Hafnfirðinga vegna Jólaþorpsins fái flýtimeðferð enda styttist í opnun markaðanna tveggja. Á Thorsplani í Hafnarfirði hefst markaðurinn föstudaginn 4. desember en á Hljómalindarreit í Reykjavík fimmtudaginn 7. desember. - gar
Mest lesið Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Innlent Fleiri fréttir „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Sjá meira