Innlent

Ríflega níu þúsund skora á forsetann

Frá blaðamannafundi InDefence hópsins fyrr á árinu.
Frá blaðamannafundi InDefence hópsins fyrr á árinu. Mynd/Arnþór Birkisson
Ríflega 9000 manns hafa skrifað undir áskorun til forseta Íslands á vefsíðu InDefence hópsins. Þar er skorað á Ólaf Ragnar Grímsson að synja nýjum Icesave lögum staðfestingar.

Hópurinn telur það sanngjarna kröfu að sú efnahagslega byrði sem ríkisábyrgðin leggur á íslenska almenning og framtíðarkynslóðir þessa lands, verði borin undir íslensku þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×