Menningin er á Miðjunni 28. nóvember 2009 06:00 Nýr vefmiðill Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir er ritstjóri nýs vefmiðils sem kallast Miðjan. fréttablaðið/anton „
Hugmyndin var að vera með miðil sem fjallar um menningu og afþreyingartengt efni. Við fjöllum um ótal mörg efni, allt frá bókmenntum og tónlist til matargerðar og barnauppeldis og erum með glæsilegan lista af fólki sem skrifar fyrir okkur,“ segir Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir ritstjóri um hið nýja vefrit Miðjuna. Vefritið er ólíkt öðrum vefmiðlum að því leyti að þar er ekki fjallað um stjórn- og efnahagsmálatengd efni heldur einbeita þau sér að menningu og öðru afþreyingartengdu efni. Aðspurð segir Bryndís Ísfold að sér hafi þótt sárvanta slíkan miðil í fjölmiðlaflóruna. „Það er ekki á döfinni hjá okkur að fara að fjalla um pólitík eða bankahrun, það er ekki okkar vettvangur. Við höfum bara verið uppi í tæpan sólarhring en höfum þegar fengið góð viðbrögð frá lesendum sem hafa hrósað okkur fyrir að skrifa um skemmtilega og áhugaverða hluti.“ Bryndís Ísfold lauk nýverið námi og sagðist hafa ákveðið að skapa sitt eigið starf að námi loknu og ákvað að koma á laggirnar vefmiðli. „Þetta var eitthvað sem mig langaði að starfa við og á svona tímum verður maður bara að skapa sér sína eigin vinnu enda ekki úr miklu að moða. Við erum þrjár, ég, Þórhildur Ólafsdóttir blaðamaður og ljósmyndarinn Julia M. Staples, sem stöndum að Miðjunni, en erum með fjöldann allan af efnilegum pennum sem skrifa fyrir okkur reglulega,“ segir Bryndís Ísfold. Innt eftir því hvernig nafnið á ritinu kom til svarar Bryndís Ísfold hlæjandi: „Miðjan er bara málið í dag.“ - sm
Mest lesið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Sjá meira