Harðari en fólk býst við 29. október 2009 03:45 Bróðir Svartúlfs á tónleikum á Dillon í sumar.
Bróðir Svartúlfs varð tuttugasta og sjöunda hljómsveitin til að bera sigur úr býtum í Músíktilraunum í apríl. Bandið blandar saman rappi og rokki og hefur nú gefið út fyrstu plötuna sína. Hún er sex laga og samnefnd sveitinni. „Við tókum hana upp að hluta til fyrir sigurlaunin,“ segir Arnar Freyr Frostason, söngvari/rappari sveitarinnar. „Í heild er platan harðari en fólk býst við frá okkur. Það má jafnvel segja að við höfum aðeins verið að blekkja með því að láta bara ljúfustu lögin okkar heyrast.“ Hér er Arnar að tala um lög eins og „Fyrirmyndar veruleika flóttamaður“, sem mikið hefur heyrst á Rás 2. Bróðir Svartúlfs varð til í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki en þaðan eru þrír meðlimir. Hinir tveir eru frá Blönduósi og Skagaströnd. Eru þetta þá sveitamenn? „Tja, ég hef reyndar átt tvö hross um dagana,“ segir Arnar. „Annað drapst í hárri elli en hitt var alltaf brjálað. Gítarleikarinn Sigfús segist eiga tuttugu rollur. Allavega talar hann alltaf um rollurnar þegar við keyrum fram hjá bænum hans á leiðinni til Reykjavíkur.“ Þrír úr bandinu eru fluttir suður, þeirra á meðal Arnar sem nemur ritlist í Háskólanum. „Hinir tveir flytja í bæinn eftir áramót og þá getum við byrjað að vinna nýtt efni. Ég veit ekki um hina en ætli maður flytji svo ekki aftur norður svona um þrítugt. Það er eiginlega ekkert fólk á milli tvítugs og þrítugs á Sauðárkróki. Maður er málaður út í horn og þarf að flytja af svæðinu ef maður vill mennta sig.“ Útgáfutónleikar verða haldnir á Sódómu á laugardagskvöld. - drg
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Sjá meira