John Howard verður fórnarlamb skóníðinga Atli Steinn Guðmundsson skrifar 4. nóvember 2009 08:43 John Howard.
John Howard, fyrrverandi forsætisráðherra Ástralíu, hefur nú bæst í hóp þeirra stjórnmálamanna sem lenda í því að verða fyrir skókasti. Howard var í sakleysi sínu í heimsókn hjá háskólanemum við Cambridge-skólann í Bretlandi þegar síðhærður, og reyndar ástralskur, nemandi hrópaði að honum þá ásökun að hann væri kynþáttahatari, reif af sér annan skóinn og fleygði í átt að ráðherranum fyrrverandi. Reyndar fór því fjarri að skórinn hæfði mark sitt enda hafði Howard uppi háðsglósur um þetta ömurlega kast. Haft hefur verið eftir skókastaranum að hann hafi skammast sín fyrir að vera Ástrali öll þau 11 ár sem Howard gegndi embætti. Þá skipaði hann gestinum að hafa sig heim en Howard svaraði því til, hinn rólegasti, að hann væri ekki kynþáttahatari og að hann færi heim á þriðjudaginn, sem sagt í gær. Nemandinn sem skipulagði heimsóknina segir í samtali við Telegraph að það besta af öllu hafi verið að sá sem grýtti skónum hafi svo, eftir að honum var vísað úr salnum, beðið félaga sinn að nálgast skóinn fyrir sig. Lögregla yfirheyrði manninn eftir atvikið en ekki er gert ráð fyrir miklum eftirmálum. Með þessu er John Howard kominn í hóp fórnarlamba skókasts en þar eru fyrir George Bush, fyrrum Bandaríkjaforseti, og Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína. Howard sagði þetta síðasta kast ákaflega dapurt og að hann myndi ekki velja kastarann í sitt lið.
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Sjá meira