Segir sjávarútvegsráðherra misnota valdheimildir 27. janúar 2009 18:49 Árni Finnsson
Árni Finnsson formaður Náttúruverndarsamtakanna vandar Einari K. Guðfinnssyni fráfarandi sjávarútvegsráðherra ekki kveðjurnar. Einar gaf út veiðiheimildir fyrir hrefnur og langreyðar til næstu fimm ára í morgun, samtals 150 hrefnur. Árni bjóst við að Einar gæfi kannski út heimildir fyrir 20 hrefnur en þetta kom honum á óvart. Spilling og misnotkun á valdi segir Árni. „Þetta er spilling og hann er með þessu að misnota sér valdheimildir og í raun að stunda skemmdarverkastarfsemi. Hann er að eyðileggja fyrir þeirri ríkisstjórn sem er að taka við völdum og hann er með þessu að skemma ímynd Íslands og fyrir samskiptum Íslands við umheiminn, og þá sérstaklega evrópusambandsríkin," segir Árni. „Hann er að þjónusta það útgerðarvald sem hann hefur beygt sig í duftið fyrir hingað til. Og þá er ég að tala um kvótakóngana sem hann ætlaði eitt sinn að takast á við en gafst upp þegar hann komst í embætti. Þetta lýsir ekki miklum manndómi." Árni segir að fáránlegast í þessu öllu saman sé að gefnar séu út veiðiheimildir til næstu fimm ára sem staðfesti það að Einar sjái ekki fram á komast í ríkisstjórn næstu fjögur árin. „Ég er mjög hissa og það er skrýtið að hann skuli gera þetta núna þegar hann er að bíða eftir því að vera leystur af. Hver svo sem það verður sem tekur við af honum þá von ég að sá hafi dug til þess að afnema þessa ákvörðun."
Tengdar fréttir Gefur út veiðiheimildir fyrir hrefnur og langreyðar Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur í dag gefið út reglugerð um veiðar á hrefnu og langreyði á árunum 2009, 2010, 2011, 2012 og 2013. Leyfilegur heildarafli skal nema þeim fjölda dýra sem kveðið er á um í veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar. Heimilt er að flytja allt að 20% af veiðiheimildum hvers árs yfir á næsta ár á eftir. 27. janúar 2009 17:35 Mest lesið Greta Thunberg á leið heim til Svíþjóðar Erlent Níu látnir eftir skotárás í Austurríki Erlent Leitin ekki enn borið árangur Innlent Sendir tvö þúsund þjóðvarðliða til viðbótar til Los Angeles Erlent Leita týnds göngumanns Innlent Rekur bólusetningaráð stjórnvalda á einu bretti Erlent Rafmagnslaust víða á Suðurlandi Innlent Hundruð milljóna um allan heim muni eignast færri börn en þau vilja Erlent Taka húfurnar úr sölu: Harma að „misheppnað grín“ hafi komið illa við fólk Innlent Einar hörðustu árásirnar á Kænugarð til þessa Erlent Fleiri fréttir Leit að göngumanni og ein harðasta árásin á Úkraínu Rafmagnslaust víða á Suðurlandi Leitin ekki enn borið árangur Reyndi að stinga lögreglu af á stolnum bíl Hljóðfæraleikarar að óbreyttu á leið í verkfall Leita týnds göngumanns Leita leiða til að auðvelda framsal fanga til heimalands síns Taka húfurnar úr sölu: Harma að „misheppnað grín“ hafi komið illa við fólk Nemar á Landspítalanum klæddust „Öldrunarbúningi“ Ökumenn mótorhjóla greiða meira en landsbyggðin minna Ástand í Kaliforníu og breytt frumvarp um kílómetragjald Tveir sjúkrabílar kallaðir út vegna bílslyss við Mjódd Sóttu veikan sjómann Konan er fundin Slökktu eld á svölum á fjórðu hæð í Engihjalla Ekki hægt að nota rafræn skilríki Mjög áhyggjufull yfir tilfærslu ráðuneytisins Frestun fjármagns til verkmenntaskóla, mótmæli í LA og fjölmenningarhátíð Komu í veg fyrir sýruleka á Akureyrarhöfn „Erum ekki að lýsa yfir stuðningi við Trump“ Þotur notaðar í flugi Icelandair til Nuuk Íslendingur á válista CIA árið 1970 Flutningur Konukots mikið framfaraskref en skilur áhyggjur nágranna Vond stjórnsýsla að teikna bara einhverja reiti á kort Fresta uppbyggingu verkmenntaskóla: „Þessi óvissa er fyrir neðan allar hellur“ Menningarveisla í allt sumar á Sólheimum Björgunarsveit selur derhúfur í stíl Bandaríkjaforseta Alvarlegt ástand í Los Angeles og opnun nýs Konukots Eftirlýstur maður handtekinn grunaður um vændiskaup Ríkisstjóri Utah heimsækir Eyjar: Mormónarnir vissu allt um sprönguna Sjá meira
Gefur út veiðiheimildir fyrir hrefnur og langreyðar Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur í dag gefið út reglugerð um veiðar á hrefnu og langreyði á árunum 2009, 2010, 2011, 2012 og 2013. Leyfilegur heildarafli skal nema þeim fjölda dýra sem kveðið er á um í veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar. Heimilt er að flytja allt að 20% af veiðiheimildum hvers árs yfir á næsta ár á eftir. 27. janúar 2009 17:35