Gefur út veiðiheimildir fyrir hrefnur og langreyðar 27. janúar 2009 17:35 Einar K. Guðfinnsson
Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur í dag gefið út reglugerð um veiðar á hrefnu og langreyði á árunum 2009, 2010, 2011, 2012 og 2013. Leyfilegur heildarafli skal nema þeim fjölda dýra sem kveðið er á um í veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar. Heimilt er að flytja allt að 20% af veiðiheimildum hvers árs yfir á næsta ár á eftir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu. Þar segir ennfremur að veiðar á langreyði hafi hafist í atvinnuskyni haustið 2006, en þær hafi legið niðri síðan vegna óvissu um sölu afurða. „Nú hefur þeirri óvissu verið eytt. Veiðar á hrefnu í vísindaskyni hófust árið 2003 og lauk árið 2007. Alls voru veidd 200 dýr. Veiðar á hrefnu í atvinnuskyni hófust árið 2006 og hafa verið stundaðar síðan. Alls hafa 46 dýr verið veidd í atvinnuskyni og afurðirnar að langmestu leyti farið á innlendan markað. Á þessum tíma hafa því alls verið veiddar 246 hrefnur. Leyfi til veiða á hrefnu á árunum 2009-2013 skal veita þeim íslensku skipum sem eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila sem hafa stundað hrefnuveiðar í atvinnuskyni á árunum 2006-2008 eða félaga sem þeir hafa stofnað um slíka útgerð. Einnig er heimilt að veita leyfi þeim einstaklingum eða lögaðilum sem að mati ráðherra hafa sambærilega reynslu af útgerð á hrefnuveiðum í atvinnuskyni. Eingöngu þeim skipum sem sérútbúin eru til veiða á stórhvölum er heimilt að taka þátt í veiðum á langreyði árin 2009, 2010, 2011, 2012 og 2013. Sú ákvörðun að veiðiheimildir séu til 5 ára er í samræmi við almenna venju innan Alþjóðahvalveiðiráðsins. Þar eru veiðiheimildir, t.d. veiðiheimildir Bandaríkjanna, jafnan ákveðnar til 5 ára í senn."
Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Erlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Fleiri fréttir Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Sjá meira