Innlent

Jón Baldvin útilokar ekki formannsframboð

Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi ráðherra útilokar ekki að bjóða sig fram til formanns Samfylkingarinnar. Hann skorar þó á Jóhönnu Sigurðardóttur að gefa kost á sér. Lúðvík Geirsson bæjarstjóri í Hafnarfirði segir að afsögn Ingibjargar Sólrúnar hafi komið á óvart. Honum finnst farsælast að Jóhanna Sigurðardóttir leiði flokkinn bæði sem formaður og forsætisráðherraefni í vor. Sjálfur einbeiti hann sér að prófkjöri um næstu helgi og gefur ekkert út á mögulegt formannsframboð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×