Bíður með málsókn gegn Rúv og Daily Mail Magnús Már Guðmundsson skrifar 25. september 2009 14:19 Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi og fyrrverandi borgarstjóri. Mynd/Valgarður Gíslason
Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi, er ekki búinn að höfða mál gegn Ríkisútvarpinu líkt og hann lýsti yfir fyrir tæpum mánuði. Það muni hann gera um leið og tími gefst til. Hann segir fréttastofu RÚV með öllu óþarfa. Í frétt Ríkisútvarpsins var því haldið fram að Ólafur hefði látið leggja fé inn á sinn eigin reikning en ekki til Frjálslynda flokksins. Ólafur segir að með þeim ummælum hafi Ríkisútvarpið þjófkennt sig. „Ég ætla svo sannarlega að standa við þau orð að reka ofan í þá þennan áróður og kannski margt fleira sem þeir hafa sagt um mig," segir Ólafur og bætir við að það heyri til undantekninga að Ríkisútvarpið segi rétt frá þegar hann eigi í hlut. „Ég ætla að gera upp sakir við fréttastofuna og þá aðila á RÚV sem hafa sýnt það í verki að fréttastofa Ríkisútvarpsins er með öllu óþörf í íslensku samfélagi," segir Ólafur. Ólafur hefur ekki höfðað mál gegn breska dagblaðinu Daily Mail líkt og hann íhugaði lengi vel eftir umfjöllun blaðsins um hann í fyrra. Ólafur telur allt eins líklegt að hann láti lögfræðing sinna vinna þessi mál saman því í umfjöllun Daily Mail hafi verið vitnað í Ríkisútvarpið. Í fréttinni var fjallað um veru Ólafs á 101 Hóteli föstudagskvöldið 10. október 2008 og meint tengsl hans við Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrverandi stjórnarformann Baugs. Blaðið gaf í skyn að Ólafur hafi bæði sýnt óviðeigandi framkomu og spillingu í borgarstjóratíð sinni. Hann var sagður drekka ótæpilega og þá var fullyrt að Ólafur hafi fengið taugaáfall skömmu fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar.
Tengdar fréttir Ólafur F.: Herbragð Hönnu Birnu og Guðjóns Arnars „Ég held því miður að þetta sé sameiginlegt herbragð Hönnu Birnu og Guðjóns Arnars. Þessir tveir fjandvinir mínir eru að reyna að koma á mig höggi. Hanna Birna ber þær sakir reyndar af sér," segir Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi. 4. september 2009 21:51 Íhuga að kæra Ólaf F. fyrir fjárdrátt „Málið er að þegar hann var borgarstjóri lét hann færa þetta fé á eigin reikning án samráðs við okkur," segir Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins. 31. ágúst 2009 10:03 Segir Rúv hafa sýnt sér vanvirðingu og ruddalega framkomu Ólafur F. Magnússon borgarfulltrúi og fyrrverandi borgarstjóri ætlar í meiðyrðarmál við Rúv vegna ummæla sem látin voru falla í hádegisfréttum útvarpsins á mánudagsmorgun. Þar var því haldið fram að Ólafur hefði látið leggja fé inn á sinn eigin reikning en ekki til Frjálslyndaflokksins. Ólafur segir að með þeim ummælum hefði Rúv verið að þjófkenna sig. 3. september 2009 10:40 Ólafur F.: Með jafnhreinan skjöld nú sem fyrr „Árið 2008 var ekki unað við það af okkar hálfu að flokkur úti í bæ sem var ekkert að vinna með okkur ætlaði að fá aftur þetta fé annað árið í röð til þess eins í besta falli að klekkja á okkur, en ekki til að láta fjármuni renna til framboðsins," segir Ólafur F. Magnússon, óháður borgarfulltrúi. 31. ágúst 2009 11:35 Ætlar í mál við Ríkisútvarpið Borgarfulltrúinn Ólafur F. Magnússon hefur ákveðið að höfða meiðyrðamál gegn Ríkisútvarpinu vegna fréttaflutnings af deilum hans við Frjálslynda flokkinn um fjárframlög frá Reykjavíkurborg. Ólafur kvaddi sér hljóðs á borgarstjórnarfundi á þriðjudag og kynnti þessi áform sín. 3. september 2009 05:45 Mest lesið Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Innlent Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Innlent „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Innlent „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Innlent Fleiri fréttir Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Sjá meira
Ólafur F.: Herbragð Hönnu Birnu og Guðjóns Arnars „Ég held því miður að þetta sé sameiginlegt herbragð Hönnu Birnu og Guðjóns Arnars. Þessir tveir fjandvinir mínir eru að reyna að koma á mig höggi. Hanna Birna ber þær sakir reyndar af sér," segir Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi. 4. september 2009 21:51
Íhuga að kæra Ólaf F. fyrir fjárdrátt „Málið er að þegar hann var borgarstjóri lét hann færa þetta fé á eigin reikning án samráðs við okkur," segir Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins. 31. ágúst 2009 10:03
Segir Rúv hafa sýnt sér vanvirðingu og ruddalega framkomu Ólafur F. Magnússon borgarfulltrúi og fyrrverandi borgarstjóri ætlar í meiðyrðarmál við Rúv vegna ummæla sem látin voru falla í hádegisfréttum útvarpsins á mánudagsmorgun. Þar var því haldið fram að Ólafur hefði látið leggja fé inn á sinn eigin reikning en ekki til Frjálslyndaflokksins. Ólafur segir að með þeim ummælum hefði Rúv verið að þjófkenna sig. 3. september 2009 10:40
Ólafur F.: Með jafnhreinan skjöld nú sem fyrr „Árið 2008 var ekki unað við það af okkar hálfu að flokkur úti í bæ sem var ekkert að vinna með okkur ætlaði að fá aftur þetta fé annað árið í röð til þess eins í besta falli að klekkja á okkur, en ekki til að láta fjármuni renna til framboðsins," segir Ólafur F. Magnússon, óháður borgarfulltrúi. 31. ágúst 2009 11:35
Ætlar í mál við Ríkisútvarpið Borgarfulltrúinn Ólafur F. Magnússon hefur ákveðið að höfða meiðyrðamál gegn Ríkisútvarpinu vegna fréttaflutnings af deilum hans við Frjálslynda flokkinn um fjárframlög frá Reykjavíkurborg. Ólafur kvaddi sér hljóðs á borgarstjórnarfundi á þriðjudag og kynnti þessi áform sín. 3. september 2009 05:45