Helmingur borgarfulltrúa birtir ekki fjárhagslegar upplýsingar 1. desember 2009 11:55
Átta borgarfulltrúar af fimmtán hafa enn ekki skilað upplýsingum um sína fjárhagslegu hagsmuni - eins og borgarráð samþykkti að gera fyrir mánuði. Þeirra á meðal er Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri. Borgarráð samþykkti í lok október að skrá fjárhagslega hagsmuni kjörinna borgarfulltrúa og birta opinberlega. Sjö hafa skilað og voru birtir á lista á heimasíðu borgarinnar nú í morgun - raunar hvarf listinn skömmu síðar, að sögn vegna tæknilegra örðugleika. Þeir sem hafa skilað eru Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Júlíus Vífill Ingvarsson og Gísli Marteinn Baldursson úr Sjálfstæðisflokki, Dagur B. Eggertsson, Björk Vilhelmsdóttir og Oddný Sturludóttir Samfylkingu og Sóley Tómasdóttir Vinstri grænum. Meðal þeirra átta sem eiga eftir að skila eru borgarstjórinn og Ólafur F. Magnússon frjálslyndum en Ólafur hefur síðustu mánuði oft vakið máls á meintum hagsmunatengslum Hönnu Birnu borgarstjóra og Samson - eða Landsbankans. Nú síðast í gær sakaði hann hana um pólitíska spillingu og krafðist afsagnar hennar eftir að fréttir birtust í DV um að Hanna Birna hafi þegið styrk frá Landsbankanum fyrir prófkjörsbaráttuna 2005 - rétt eins og þrír aðrir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins. Heimildir DV hermdu að þessir styrkir hefðu verið allt að 800 þúsund krónur. Í ljósi þessa telur Ólafur að Hanna Birna hafi verið gersamlega vanhæf til að beita sér fyrir byggingu Listaháskóla Íslands við Laugaveg - þar sem eigendur Landsbankans hugðust byggja yfir skólann. Ekki náðist í Hönnu Birnu í morgun - en hún hefur hingað til ekki svarað því hvort hún þáði framlag frá Landsbankanum á sínum tíma. En þess gæti verið skammt að bíða að allar slíkar upplýsingar liggi fyrir, því flokkar og frambjóðendur bæði til alþingis og sveitarstjórna hafa aðeins frest til 10. desember til að skila inn upplýsingum til Ríkisendurskoðunar um framlög yfir 200 þúsund krónum aftur til ársins 2002 - og þær upplýsingar verða síðan birtar opinberlega.
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira