Innlent

Samþykki AGS tímamót í endurreisninni

Jóhanna Sigurðardóttir.
Jóhanna Sigurðardóttir. Mynd/Pjetur
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir samþykki Alþjóðagjaldeyrissjóðsins vera tímamót í efnahagslegri endurreisn landsins og muni styrkja gjaldeyrisforðann. Hún vonast til þess að næsta endurskoðun sjóðsins sem er í desember gangi vandræðalaust. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn afgreiddi í dag fyrstu endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands. Endurskoðunin hefur tafist í átta mánuði en upphaflega stóð til að hún færi fram í febrúar á þessu ári. Bretar og Hollendingar beittu sér hins vegar gegn málinu á meðan Icesave deilan var óleyst.

Skrifað var undir nýtt Icesave samkomulag í síðustu viku og í kjölfarið setti stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins Ísland aftur á dagskrá.

Við afgreiðsluna í dag fengu Íslendingar undanþágu frá ákvæðum um hreinan fjármagnsjöfnuð ríkissjóðs, hreinan gjaldeyrisforða Seðlabankans og endurfjármögnun viðskiptabankanna.

Íslendingar fá 675 milljónir bandaríkjadala frá Norrænu ríkjunum og Póllandi og 168 milljónir dala frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Alls um eitt hundrað milljarða króna.

Eins undarlega og það kann að hljóma þurftu íslendingar sem sagt að ábyrgjast 750 milljarða króna skuldbindingu vegna Icesave til að fá aðgang að 100 milljarða króna láni.

Afgangurinn af þeim lánum sem Íslendingum stendur til boða á að greiðast út við næstu sjö endurskoðanir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Sú næsta fer fram í desember á þessu ári.

Afgreiðslan í dag mun hafa jákvæð áhrif á íslenskt efnahagslíf að mati sérfræðinga. Seðlabankinn getur hafið afnám gjaldeyrishafta og í kjölfarið þykir líklegt að krónan muni styrkjast. Þá telja ennfremur margir að þetta styrki tiltrú erlendra aðila á íslensku efnahagslífi.


Tengdar fréttir

AGS samþykkir endurskoðun efnahagsáætlunar

Endurskoðun á efnahagsáætlun Íslendinga var samþykkt á fundi stjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á fimmta tímanum í dag. Því mega stjórnvöld búast við greiðslu lána frá sjóðnum á næstunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×