Innlent

Kjartan Magnússon gefur kost á sér í 2. sætið

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Kjartan Magnússon borgarfulltrúi.
Kjartan Magnússon borgarfulltrúi.
Kjartan Magnússon borgarfulltrúi gefur kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar á komandi vori.

„Ég leita eftir stuðningi í 2. sæti framboðslistans þar sem ég tel að reynsla mín og kraftar muni nýtast Reykvíkingum best verði ég í forystusveit. Við blasa vandasöm verkefni á erfiðum tímum, þar sem Reykjavíkurborg þarf að sýna frumkvæði, aðhaldssemi og ábyrga stjórnsýslu í þágu borgaranna. Þar þurfa að haldast í hendur varðstaða um velferð þeirra, sem síst mega við áföllum, endurreisn atvinnulífsins og viðgangur þess eftirsóknarverða umhverfis, sem Reykjavík er fyrir fagurt mannlíf og athafnaþrá einstaklinganna," segir Kjartan í yfirlýsingu sem hann sendi Vísi vegna framboðsins.

Kjartan segir jafnframt að ekki megi hvika og leggja verði allt kapp á að talsmenn sundurlyndis og skattpíningar, veruleikaflótta og skyndilausna grafi ekki um sig við stjórn borgarinnar líkt og gerst hefur á vettvangi landsmálanna. Til þess að koma í veg fyrir það þurfi Sjálfstæðisflokkurinn að tefla fram sigurstranglegum framboðslista, þar sem saman fari myndugleiki fyrir hönd borgaranna og auðmýkt gagnvart þeim, frumkvæði og reynsla, dirfska og aðgætni, ráðdeild og festa.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×