Veitt strax þegar laun lækka 8. september 2009 02:00 framtíðin Alls eiga 200 fjölskyldur með 300 börn á framfæri rétt á aðstoð. Myndin tengist ekki efni fréttarinnar. fréttablaðið/gva
Velferðarráð Reykjavíkurborgar hefur ákveðið breytingar á reglum um fjárhagsaðstoð. Breytingin felur í sér að nú eiga um 200 fjölskyldur með um 300 börn á framfæri rétt á sérstakri fjárhagsaðstoð. Þessi fjárhagsaðstoð er viðbót við þá aðstoð sem Reykjavíkurborg hefur veitt barnafjölskyldum fyrr á árinu. Markmiðið með breytingunum er að koma betur til móts við tekjulága foreldra með börn á framfæri. Fram til þessa hefur verið heimilt að veita sérstaka fjárhagsaðstoð vegna barna, krónur 11.635 á mánuði, ef tekjur undanfarna fjóra mánuði hafa verið við eða lægri en grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar. Eftir breytingu er hægt að veita sérstaka fjárhagsaðstoð vegna barna strax og tekjur lækka niður fyrir grunnfjárhæð. Að sögn Jórunnar Frímannsdóttur, formanns Velferðarráðs, eru reglurnar um fjárhagsaðstoð í endurskoðun. „Það var nauðsynlegt, í ljósi breyttra aðstæðna, að gera breytingu hvað þennan lið varðar strax. Fólk hefur minni bjargráð en áður, stórfjölskyldan á erfiðara með að hlaupa undir bagga og það er mikilvægt að styðja við börnin.“ Kostnaður borgarinnar vegna breytingarinnar er um þrjár milljónir á tímabilinu september til desember 2009, en áætlaður kostnaður á ársgrundvelli 4,8 milljónir króna. - shá
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Fleiri fréttir Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Sjá meira