Það er gott að búa í Skagafirði 8. september 2009 16:36
Níu af hverjum tíu Skagfirðingum eru ánægðir með að búa í Skagafirði og næstum 8 af hverjum 10 segjast ánægðir með lífsgæði í sveitarfélaginu. Þetta kemur fram í viðamikilli könnun sem Capacent Gallup vann fyrir sveitarfélagið Skagafjörð þar sem viðhorf íbúa til þjónustu sveitarfélagsins og búsetu var kannað. Íbúarnir eru almennt mjög ánægðir með þjónustu sveitarfélagsins svo sem þjónustu við barnafjölskyldur, þó að einstaka þætti í þjónustunni þurfi að laga. Úrtak var 1200 manns og var könnunin að mestu framkvæmd á netinu. Spurningar í könnuninni snúast fyrst og fremst um þá þjónustu sem sveitarfélagið veitir íbúum sínum en til að fá gleggri mynd af viðhorfum íbúa Skagafjarðar til búsetu þar var einnig spurt út í aðra þætti svo sem þjónustu lögreglu, heilbrigðisstofnunar og fjölbrautaskóla, auk spurninga um atvinnu-, menningar- og félagslíf. Í tilkynningu frá sveitarfélaginu segir að helstu niðurstöður séu þær að heildaránægja fólks með að búa í Sveitarfélaginu Skagafirði er ennþá mikil og hún hefur heldur aukist frá árinu 2005 þegar sambærileg könnun var gerð. Nú segjast 89% vera ánægð með að búa í Skagafirði á heildina litið en einungis 3% eru óánægð með að búa í sveitarfélaginu. „Athygli vekur að íbúar eru ánægðari með lífsgæði almennt í sveitarfélaginu núna í miðri efnahagslægð, en þeir voru árið 2005 þegar góðæri var hérlendis, en 79% íbúa sögðust vera ánægð með lífsgæði almennt í sveitarfélaginu." Nánar má kynna sér könnunina á heimasíðu Skagafjarðar.
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Fleiri fréttir Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Sjá meira