Stálust í sund og lentu í yfirheyrslum 18. ágúst 2009 17:56 Erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í síðustu viku.
Töluverður erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í síðustu viku við hin ýmsu mál. Að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum er það nokkuð óvenjulegt miðað við tíma árs, þar sem mikið fækkar í bænum á þessum tíma þegar heimamenn taka sitt sumarfrí að lokinni Þjóðhátíð. Meðal þeirra mála sem lentu inni á borði lögreglu voru strákapör fjögurra drengja sem stálust í sund. Eitt fíkniefnamál kom upp í vikunni þegar um 27. gr. af kannabissefni fundust á aðila sem var að koma með slöngubát frá Bakkafjöru. Þessi aðili viðurkenndi að eiga efnin og sagði þau til eigin neyslu. Áður hefur verið sagt frá í fjölmiðlum þeirri svaðilför sem þessir aðilar lentu í við landtöku í Bakkafjöru. Í vikunni var aðili handtekinn grunaður um að hafa brotist inn í veitingastaðinn Kaffi María. Hann var handtekinn þar nærri en vitni hafði séð til manns þar inni. Áfengisflöskur frá veitingarstaðum fundust í nærliggjandi húsagarði. Hann var færður í fangageymslu en við yfirheyrslu neitaði hann allri aðild að málinu. Málið er í rannsókn. Einn aðili tilkynnti um líkamsárás en það gerðist fyrir utan heimahús. Sá er varð fyrir árásinni hefur ekki lagt fram kæru enn sem komið er en einhverjir áverkar voru á honum. Aðfaranótt laugardags var tilkynnt að fjórir aðilar hafi farið inn í sundlaugagarð við íþróttamiðstöðina og baðað sig í heitupottunum. Þeir voru yfirheyrðir og skýrsla gerð um málið. Rætt var við foreldra þessara drengja og þeim tilkynnt um málið. Af umferðarmálum er það að frétta að einn aðili var tekinn grunaður um ölvun við akstur og var hann sviptur ökuleyfi á staðnum. Er þetta níundi ökumaðurinn sem tekinn er þetta árið. Einn aðili var kærður fyrir að fara yfir á rauðu ljósi á Strandvegi og ekki hafa réttindi til að stjórna því ökutæki sem hann var á. Þá voru tveir aðilar kærðir fyrir að vera ekki með öryggisbelti spennt.
Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Erlent Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Innlent Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Innlent Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Innlent Fleiri fréttir Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Sjá meira