Hátt í fimm hundruð missa vinnuna á LSH 3. október 2009 06:00 Há sparnaðarkrafa. Landspítalanum er gert að skera niður um samtals 3,2 milljarða á næsta ári, um níu prósent af því sem kostar að reka hann á ársgrundvelli. Fréttablaðið/vilhelm „
Ef þessi krafa um niðurskurð á rekstrarfjármagni spítalans gengur eftir mun hún gera það að verkum að segja þarf upp hundruðum starfsmanna og minnka þjónustuna.“ Þetta segir Björn Zöega, forstjóri Landspítalans, um fjárlagafrumvarp fyrir árið 2010. Þar er Landspítalanum gert að skera niður um samtals 3,2 milljarða á næsta ári, eða um níu prósent af því sem kostar að reka hann. Í ár var honum gert að spara 2,8 milljarða króna, eða sem nemur 8,4 prósentum af rekstrarfjármagni „Ekki hefur verið útfært hjá okkur hvernig við minnkum þjónustuna,“ segir Björn. „Eins og fyrr verður reynt að skerða öryggi sjúklinga og bráðastarfsemina eins lítið og hægt er. En það munu allir finna fyrir þessu með einum eða öðrum hætti. Það er ekki hægt að gera þetta öðruvísi en með uppsögnum úr öllum starfshópum spítalans.“ Björn bendir á að ekki hafi þurft að segja upp nema örfáum starfsmönnum á árinu með því að grípa til ráðstafana eins og að breyta vinnuskipulagi, lækka laun og breyta öllu sem hægt var að breyta án þess að það leiddi til uppsagna starfsfólks. Með því hafi náðst að stærstum hluta upp í sparnaðarkröfu ársins. „Uppsagnir eru því næsta skref þegar ekki verður hagrætt lengur,“ segir Björn. Á Landspítala starfa um 5.000 starfsmenn. Ef níu prósenta sparnaðarkrafa næsta árs fælist í uppsögnum myndi það þýða uppsagnir 450 starfsmanna. „Ég vissi að það þyrfti að spara ákveðna tölu í heilbrigðiskerfinu,“ segir Björn enn fremur. „En ég hefði vonast til þess að það yrðu frekari vísbendingar um endurskipulagningu þess í frumvarpinu og verkaskiptingu milli staða. Suðvesturlandið er langstærsti hlutinn af þessu og ekki neitt í fjárlögum sem bendir til endurskipulagningar þar. Landspítalinn er öryggisnet landsmanna. Ef enginn annar getur eða er með opið þá er það Landspítalinn sem tekur við. Við verðum alltaf að hafa opið fyrir allar sérgreinar. Ég taldi satt að segja að það yrði tekið tillit til þess við gerð fjárlaga hvað Landspítalinn er viðkvæmur fyrir ytri aðstæðum, svo sem veikri stöðu krónunnar, þar sem svo mikið er keypt af lyfjum og rekstrarvörum beint frá útlöndum.“ jss@frettabldid.is
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Innlent Fleiri fréttir Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Sjá meira