Innlent

Kærir Akranesbæ vegna tölvusamnings

Enn er deilt um samninga um tölvuþjónustu bæjarins. Nú hefur ákvörðun bæjarstjórnar verið kærð til kærunefndar útboðsmála. Kærandi segir upphæð samningsins gera hann útboðsskyldan.fréttablaðið/gva
Enn er deilt um samninga um tölvuþjónustu bæjarins. Nú hefur ákvörðun bæjarstjórnar verið kærð til kærunefndar útboðsmála. Kærandi segir upphæð samningsins gera hann útboðsskyldan.fréttablaðið/gva

Tölvufyrirtækið Omnis hefur kært Akraneskaupstað til kærunefndar útboðsmála fyrir ákvörðun bæjaryfirvalda um að framlengja samning sinn við Tölvuþjónustuna SecurStore. Fallið var frá útboði og ákveðið að semja við fyrirtækið til 18 mánaða.

Líkt og Fréttablaðið hefur greint frá hefur minnihluti bæjarstjórnar gagnrýnt meirihlutann í málinu. SecurStore er í eigu Arnar Gunnarssonar, sem er sonur Gunnars Sigurðssonar forseta bæjarstjórnar, og Bjarna Ármannssonar. Bæjarráð fól bæjarstjóra í sumar að undirbúa útboð á tölvuþjónustunni. Á öðrum fundi var bæjarstjóra einnig falið að leita eftir afslætti á fyrirliggjandi samningum. Bæjarstjórn samþykkti síðan framlengdan samning við SecurStore með 25 prósenta afslætti, í stað þess að fara í útboð.

Omnis krefst þess að sá samningur verði stöðvaður, eða gerður ógildur hafi hann þegar verið gerður, og bæjaryfirvöldum gert að bjóða þjónustuna út. Þá er nefndin beðin að láta í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu bæjarfélagsins.

Eggert Herbertsson, framkvæmdastjóri Omnis, segir fyrirtækið hafa unnið forvinnu vegna fyrirhugaðs útboðs sem aldrei varð af. Tilboð þess hefði sparað bæjarfélaginu rúmar 11 milljónir króna á samningstímanum. Hann hafi sent inn tilboð sem aldrei hafi verið svarað.

Nokkuð hefur verið deilt um kostnað við tölvuþjónustuna. Gísli sagði við Fréttablaðið 12. september að kostnaður við hýsingu og afritun væri um sex milljónir. Það er undir viðmiðunarmörkun um útboð í innkaupastefnu bæjarins og lögum um opinber útboð, sem er 10 milljónir króna.

Eggert segir hins vegar að það sé ekki nema brot af kostnaði bæjarins við samninginn. Mun fleira felist í þjónustunni og heildarkostnaður sé yfir 20 milljónir á ársgrundvelli. Samningur til 18 mánaða sé því um 30 til 35 milljóna króna virði og útboðsskyldur.

Þetta er í annað skipti sem fallið er frá því að bjóða tölvuþjónustu bæjarins út. Árið 2008 var samið við SecurStore og bókun bæjarráðs frá 25. október 2007 um útboð var þar með snúið við. Eyjólfur R. Stefánsson tölvunarfræðingur kærði þá ákvörðun til samgönguráðuneytis sem úrskurðaði hana lögmæta.

kolbeinn@frettabladid.is








Fleiri fréttir

Sjá meira


×