Bjargað úr rústum eftir tvo sólarhringa 3. október 2009 03:45 Mynd/AFP
Tveimur var bjargað úr rústum húsa á Indónesíu í gær, nærri tveimur sólarhringum eftir að þær grófust undir. Önnur þeirra var nægilega hress til að bjóða fram fimm fingur í kveðjuskyni á móti hönd björgunarmanns meðan hún var borin burt. Björgunarfólk vann í kappi við tímann, en litlar vonir þykja til að fleiri finnist á lífi úr því sem komið er. Óttast er að þrjú þúsund manns eigi eftir að finnast látnir, en sá fjöldi bætist þá við þau rúmlega 700 lík sem nú þegar hafa fundist á vestanverðri eyjunni Súmötru. Rotnunarlyktin var stæk þegar tugir líka voru lagðir í röð á stéttar borgarinnar Padang, þar sem tjónið varð mest. Erfitt hefur reynst að veita fólki nauðsynlega læknishjálp og víða hafa ekki einu sinni björgunarmenn komist á staðinn. Ástæða var þó til að fagna þegar konurnar tvær fundust á lífi í rústum skólabyggingar í Padang. Ratna Kurnisari Virgo er 19 ára enskunemi en hin er kennari í málaskólanum, Suci Revika Wulan Sari. Sari hafði legið innan um lík nemenda sinna í nærri tvo sólarhringa, en virtist ekki hafa orðið mikið meint af. „Hún var með meðvitund, en fætur hennar og fingur voru bólgnir vegna þess að hún var undir þrýstingi," sagði skólastjóri hennar, Teresia Lianawaty. Jarðskjálfti, sem mældist 7,6 stig, varð á miðvikudag skammt frá Padang, sem er 900 þúsund manna borg á vestanverðri Súmötru. Á fimmtudagsmorgun varð síðan annar stór skjálfti, sem mældist 6,7 stig. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent Hormússundi lokað á ný Erlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Erlent Fleiri fréttir Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Sjá meira