Tuttugu sóttu um leyfi til hrefnuveiða 18. maí 2009 04:15 Hrefnuveiðimenn ætla að skipta bátnum Nirði út fyrir stærra skip og veiða megnið af eitt hundrað dýra kvóta á hann.Mynd/gunnar bergmann
Hætt hefur verið við áform um að setja upp vinnslu hvalaafurða á Akranesi. Félag hrefnuveiðimanna gat ekki fylgt eftir hugmyndum sínum um fjárfestingar vegna óvissu um framtíð veiðanna. „Það liggur fyrir að ekkert verður af vinnslunni í ár,“ segir Gunnar Bergmann Jónsson, framkvæmdastjóri Félags hrefnuveiðimanna. „Fyrrverandi sjávarútvegsráðherra tryggði okkur veiðileyfi til fimm ára sem gerði okkur kleift að huga að fjárfestingum til að setja upp okkar bækistöðvar á Akranesi. Yfirlýsingar Steingríms J. Sigfússonar um endurskoðun hvalveiða að lokinni komandi vertíð urðu hins vegar til þess að fjárfestar sem við höfðum náð samkomulagi við kipptu að sér höndunum.“ Gunnar segir að hrefnuveiðimenn hafi eftir sem áður leyfi til hrefnuveiða í fimm ár og fari svo að því verði breytt verði því ekki tekið þegjandi og hljóðalaust. Hrefnuveiðimenn hafa komist að samkomulagi við kjötvinnsluna Esju í Reykjavík um að verka þær eitt hundrað hrefnur sem leyfilegt er að veiða í sumar. Samkvæmt upplýsingum frá sjávarútvegsráðuneytinu hafa tuttugu aðilar sótt um leyfi til hrefnuveiða en fyrir höfðu verið veitt leyfi til þriggja útgerða. Það eru útgerðir Halldórs Sigurðssonar og Drafnar í Reykjavík og Njarðar í Kópavogi. Þessar útgerðir hafa stundað hrefnuveiðarnar á undanförnum árum og uppfylla öll skilyrði sem sett eru fyrir þeim. Innan Félags hrefnuveiðimanna eru fjórar aðrar útgerðir, eða alls sjö. Gunnar segir að félagið muni ekki sækja um fleiri leyfi; það hafi verið ákveðið að stunda veiðarnar sameiginlega á þremur bátum. Um það hefur verið stofnað félagið Hrefnuveiðimenn ehf. Gunnar á ekki von á að gefin verði út fleiri leyfi. Sjávarútvegsráðuneytið getur ekki svarað því hversu margir umsækjendur standast kröfur, eða hafa tiltæka báta til veiðanna. Leyfisveitingarnar hafa verið gagnrýndar af Félagi hrefnuveiðimanna. Gunnar minnir á að þeim fáu sem stundað hafa veiðarnar í gegnum árin hafi verið lofað að þeir fengju til baka þann rétt sinn til að veiða hrefnu þegar takmörkunum yrði aflétt. Réttur þeirra hafi verið viðurkenndur af öllum sjávarútvegsráðherrum sem setið hafa síðan veiðibann var sett á á níunda áratugnum. Því skjóti það skökku við núna að stjórnvöld auglýsi leyfi til veiðanna fyrir hvern sem er.svavar@frettabladid.is
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Fleiri fréttir „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Sjá meira