Hélt að hætt hefði verið við framsóknarboð Óskars Breki Logason skrifar 17. febrúar 2009 21:33 Svandís Svavarsdóttir
Svandís Svavarsdóttir oddviti Vinstri grænna í borgarstjórn segist hafa gert athugasemdir í forsætisnefnd við fyrirhugaða móttöku Óskars Bergssonar fyrir sveitastjórnarfulltrúa framsóknarflokksins. Hún lét hinsvegar ekki bóka neitt um málið og hélt að af móttökunni yrði ekki. Aðspurð um svipaða móttöku sem hennar flokkur hélt árið 2004 segist Svandís ekki hafa átt sæti í borgarstjórn á þeim tíma en segir að skerpa þurfi á reglum um móttökur á vegum borgarinnar. Líkt og komið hefur fram á Vísi hélt Óskar móttöku fyrir samflokksmenn sína í nóvember á síðasta ári. Ólafur F. Magnússon gagnrýndi móttökuna á fundi borgarráðs í dag og krafðist þess að Óskar segði af sér. Fram hefur komið að Svandís gerði athugasemdir við móttökuna í forsætisnefnd ásamt Degi B. Eggertssyni. Hún segir Óskar Bergsson ekki hafa setið umræddan fund og það hafi Ólafur F Magnússon ekki heldur gert. „Við gerðum alvarlegar athugasemdir sem Vilhjálmur Þ. tók við og gerðum því ráð fyrir að af þessari móttöku yrði ekki en við bókuðum ekki neitt enda er ekki hefð fyrir því. Upplýsingar sem þessar eru einungis lagðar fram fyrir nefndina en ekki er ætlast til þess að þær séu samþykktar eða þeim synjað," segir Svandís og bendir á að forsætisnefnd hafi eftirlitshlutverk með móttökum sem þessum. Óskar sagði í frétt á Vísi fyrr í kvöld og í Kastljósi Sjónvarpsins að flokkur Svandísar hefði haldið álíka móttöku árið 2004. Aðspurð um þá móttöku segir Svandís: „Ég kom ekki að þeirri ákvörðun frekar en öðrum á þeim tíma þar sem ég tók ekki sæti í borgarstjórn fyrr en vorið 2006." Hún segist hinsvegar hafa heyrt af málinu í Kastljósi kvöldsins og hafi í kjölfarið farið að grafast fyrir um það en umrædd móttaka var haldin 16.október árið 2004. Í móttökuplaggi frá þeim tíma segir að um hafi verið að ræða heimsókn fyrir sveitastjórnarráðstefnu VG að sögn Svandísar. „Ég er búin að fara yfir þetta með Árna Þór [Sigurðssyni] sem þá var forseti borgarstjórnar. Inni í dagskránni er eitthvað sem heitir heimsókn í Ráðhús Reykjavíkur þar sem þessu fólki hefur verið sýnt húsið. Það hefur síðan væntanlega endað með einhverjum veitingum," segir Svandís. Hún segist ekki vera neinn sérfræðingur í móttökum en samkvæmt þeim upplýsingum sem hún hafi um málið hafi þetta líklega verið einhverskonar skoðunarferð um ráðhúsið. „Það er hinsvegar alveg á hreinu að fólk verður að vera á bremsunni þegar að svona málum kemur." Svandís segist ekki hafa verið á staðnum þegar þessi ákvörðun hafi verið tekin en hinsvegar taki hún undir það að skerpa verði á hlutum sem þessum því almenningur hafi rétt á því. „Við erum jú í vinnu hjá almenningi."
Tengdar fréttir Ólafur krafðist afsagnar Óskars Bergssonar Ólafur F. Magnússon krefst þess að Óskar Bergsson, formaður borgarráðs, segi af sér vegna þess sem að hann kallar misnotkun á mótttökustarfsemi og ýmsu öðru sem varði stjórn borgarinnar í tíð núverandi borgarstjórnar. 17. febrúar 2009 14:55 Óskar fékk leyfi forsætisnefndar fyrir framsóknarboði Borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, Óskar Bergsson lagði fram ósk á fundi forsætisnefndar borgarstjórnar á síðasta ári um að fá að halda gestamóttöku fyrir sveitarstjórnarfulltrúa Framsóknarflokksins. Það var samþykkt þann fjórða nóvember af nefndinni en það voru þeir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Dagur B. Eggertsson og Gísli Marteinn Baldursson sem samþykktu beiðni Óskars og reyndar fleiri móttökur. 17. febrúar 2009 16:19 Framsóknarboð Óskars: Braut engar reglur Óskar Bergsson formaður borgarráðs segir engar reglur hafa verið brotnar þegar hann hélt móttöku fyrir sveitastjórnarfulltrúa framsóknarflokksins sem sátu ráðstefnu á vegum flokksins í Ráðhúsinu. Hann segir engar athugasemdir hafa verið bókaðar í forsætisnefnd vegna málsins og heyrði fyrst af þeim í dag. Hann vill ekki svara því til hvort hann ætli að segja af sér vegna málsins. 17. febrúar 2009 19:35 Dagur og Svandís gagnrýndu veisluhöld Óskars Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, Dagur B. Eggertsson, segist hafa gagnrýnt áform Óskars Bergssonar vegna fundar sem hann hélt með sveitarstjórnarfulltrúum Framsóknarflokksins í Ráðhúsinu. 17. febrúar 2009 17:01 Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira
Ólafur krafðist afsagnar Óskars Bergssonar Ólafur F. Magnússon krefst þess að Óskar Bergsson, formaður borgarráðs, segi af sér vegna þess sem að hann kallar misnotkun á mótttökustarfsemi og ýmsu öðru sem varði stjórn borgarinnar í tíð núverandi borgarstjórnar. 17. febrúar 2009 14:55
Óskar fékk leyfi forsætisnefndar fyrir framsóknarboði Borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, Óskar Bergsson lagði fram ósk á fundi forsætisnefndar borgarstjórnar á síðasta ári um að fá að halda gestamóttöku fyrir sveitarstjórnarfulltrúa Framsóknarflokksins. Það var samþykkt þann fjórða nóvember af nefndinni en það voru þeir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Dagur B. Eggertsson og Gísli Marteinn Baldursson sem samþykktu beiðni Óskars og reyndar fleiri móttökur. 17. febrúar 2009 16:19
Framsóknarboð Óskars: Braut engar reglur Óskar Bergsson formaður borgarráðs segir engar reglur hafa verið brotnar þegar hann hélt móttöku fyrir sveitastjórnarfulltrúa framsóknarflokksins sem sátu ráðstefnu á vegum flokksins í Ráðhúsinu. Hann segir engar athugasemdir hafa verið bókaðar í forsætisnefnd vegna málsins og heyrði fyrst af þeim í dag. Hann vill ekki svara því til hvort hann ætli að segja af sér vegna málsins. 17. febrúar 2009 19:35
Dagur og Svandís gagnrýndu veisluhöld Óskars Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, Dagur B. Eggertsson, segist hafa gagnrýnt áform Óskars Bergssonar vegna fundar sem hann hélt með sveitarstjórnarfulltrúum Framsóknarflokksins í Ráðhúsinu. 17. febrúar 2009 17:01