Arnþrúður og Jónína grafa stríðsöxina á Útvarpi Sögu 5. júní 2009 04:30 arnþrúður karlsdóttir Ætlar í detox hjá dagskrárgerðarmanni sínum, Jónínu. „
Ég er fyrst og fremst ánægð með hversu þættirnir eru góðir hjá henni. Þetta er bráðsniðug og skemmtileg nýjung [detox] sem hún hefur komið með til landsins. Mér veitti ekki af því. Já, ég reikna frekar með því að fara í detox,“ segir útvarpsstjórinn Arnþrúður Karlsdóttir á Sögu. Jónína Benediktsdóttir heilsufrömuður er með þætti á Sögu á föstudögum eftir hádegi og fjalla þeir um lífsstíl og sjúkdómatengdan lífsstíl, lyf og leiðir til að ná heilsu. Hlustendur geta hringt í þáttinn og segir Arnþrúður þá nýta sér það. Þetta væri í sjálfu sér ekki í frásögur færandi nema vegna þess að Arnþrúður og Jónína voru miklar vinkonur en það slettist harkalega upp á vinskapinn og komst ágreiningur þeirra í hámæli. Arnþrúður segir stríðsöxina nú grafna. „Jájájá, við höfum gaman af að hrekkja hvor aðra. Við vorum bara að rífast út af tilteknu máli. Ég var ósátt við hvernig lögreglan var notuð, með stórum staf, í Baugsmálinu. Sem fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður ofbauð mér það. Jónína hafði aðrar skoðanir á því,“ segir Arnþrúður og bætir við að allt þetta sé fyndið þegar litið er til baka. Að sögn Jónínu hefur reynsla hennar undanfarin 26 ár sem íþróttafræðingur, leiðbeinandi og brautryðjandi á sviði heilsuræktar verið mikill skóli sem nýtist nú í dagskrárgerðinni. „Og í samstarfi við lækna stunda ég detox-hreinsun á þremur stöðum; í Póllandi, Reykjanesi og í Mývatnssveit yfir vetrartímann. Ekki er um óhefðbundnar læknisaðferðir að ræða eins og vankunnugir halda fram heldur hreinsun eða föstu í samráði við lækna.“ - jbg
Mest lesið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni „Við erum öll nóg“ Lífið „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Fleiri fréttir Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Sjá meira