Ennþá ferskir eftir öll þessi ár 30. apríl 2009 03:45 Samstarfið hjá þeim Dave Gahan, Martin Gore og Andrew Fletcher hefur aldrei gengið betur en í dag, enda Martin Gore hættur að drekka og dópa.
Það er engan bilbug að finna á ensku þremenningunum í Depeche Mode, en á dögunum sendu þeir frá sér sína tólftu hljóðversplötu, Sounds of the Universe. Trausti Júlíusson tékkaði á þessu lífseiga rafpoppbandi. Það hafa líklega ekki margir búist við því þegar hljómsveitin Depeche Mode var stofnuð árið 1980 að hún ætti enn eftir að vera starfandi tæpum þrjátíu árum seinna. Tólfta hljóðversplata sveitarinnar, Sounds of the Universe, var að koma út og fram undan er risatónleikaferð sem hefst 6. maí í Lúxemborg og stendur í það minnsta til 6. febrúar 2010 þegar sveitin treður upp í Moskvu.Essex-strákarDepeche Mode hljómsveitForsaga Depeche Mode hófst árið 1977 í Basildon í Essex þegar þeir Andrew Fletcher og Vince Clarke stofnuðu hljómsveitina No Romance in China. Þeir gengu í gegnum nokkrar mannabreytingar á næstu þremur árum og skiptu oft um nafn. Saman eða hvor í sínu lagi reyndu þeir meðal annars fyrir sér sem The French Look og Composition of Sound og árið 1979 bættist Martin Gore í hópinn. Eftir að Vince Clarke heyrði Dave Gahan syngja David Bowie-lagið Heroes var hann ráðinn og Depeche Mode varð til. Nafnið fengu þeir frá franska tískublaðinu Dépêche mode. Speak & SpellHljómsveitin gerði samning við Mute Records (sem gefur verk hennar út enn í dag) og í nóvember 1981 kom fyrsta plata sveitarinnar, Speak & Spell. Hún seldist vel, en fékk misjafna dóma. Sumum gagnrýnendum þótti þetta heldur þunnfljótandi og léttvægt. Eftir útkomu plötunnar hætti Vince Clarke, sem hafði verið aðallagasmiður sveitarinnar. Hann stofnaði Yazoo með Alison Moyet og seinna Erasure með Andy Bell. Depeche Mode hélt samt ótrauð áfram og snemma árs 1982 gekk Alan Wilder til liðs við sveitina. Hann var meðlimur allt til 1995, en síðan hefur Depeche Mode verið tríó. Metsöluplötur og stórtónleikarVinsældir Depeche Mode jukust jafnt og þétt á níunda áratugnum. Plötur eins og Some Great Reward frá 1984, Music for the Masses (1987) og Violator (1990) seldust vel og hljómsveitin varð sífellt stærra tónleikanúmer. Eftir mikla leikvanga-tónleikaferð árið 1998 tók sveitin sér þriggja ára hlé en sneri svo aftur árið 2001 með plötuna Exciter sem þótti sýna að sveitin væri enn í fullu fjöri. Árið 2005 kom Playing the Angel og nú er plata númer tólf komin út. Góður mórallSounds of the Universe er í þessum sígilda Depeche Mode-stíl, en hljómar samt furðu fersk. Sándið er mjög flott og þeir félagar eiga greinilega ekki í vandræðum með lagasmíðarnar. Sveitin hefur gengið í gegnum eitt og annað á ferlinum og það hefur oft reynt á samstarfið. Þeir segja samt að það hafi sjaldan gengið betur en í dag. Martin Gore er loksins hættur að drekka og dópa og Dave Gahan er orðinn afslappaðri og er að eigin sögn hættur að hafa það á heilanum hvað hann komi mörgum lögum eftir sig á næstu Depeche Mode-plötu.
Mest lesið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Lífið samstarf Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Hvað veistu um… árið 2010? Lífið Fleiri fréttir Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Sjá meira