Stutt stopp á Lýðvarpi Ástþórs 18. maí 2009 07:30 stúdíó lýðvarpsins Þegar ljósmyndara bar að garði á Lýðvarpinu var Grétar Mar, fyrrverandi þingmaður, við míkrófóninn en upplausnarástand ríkir nú á útvarpsstöðinni.fréttablaðið/anton
Svo virðist sem upplausnarástand sé á Lýðvarpinu. Helsta stjarnan, Sirrý spá, er hætt og framkvæmdastjórinn einnig. „Já, þetta passar. Ég er hætt á Lýðvarpinu,“ segir Sirrí Sigfús, spákona og útvarpsmaður. Sirrý spá, ein helsta útvarpsstjarna Útvarps Sögu, ákvað að söðla um og ganga til liðs við Lýðvarpið. Hún staldraði hins vegar stutt við þar. Hún gekk á dyr þegar hún komst að raun um að Ástþór Magnússon er potturinn og pannan á Lýðvarpinu. „Ég hef aldrei verið hrifin af Ástþóri og ekki viljað koma nálægt neinu sem hann er að gera. Mér var tjáð að hann væri fluttur til Spánar og væri ekki eigandi stöðvarinnar. Það voru rosaleg gylliboð í gangi og mikill þrýstingur á mig að ég kæmi. Ég átti að vera með minn eigin þátt og mátti ráða mínum málum alfarið sjálf. En þetta eru ekkert nema svik og prettir,“ segir Sirrý. Hún var með þátt á Lýðvarpinu en þá gafst hlustendum kostur á að hringja inn. Þátturinn átti að vera frá níu til tíu að kvöldi en vegna gríðarlega mikilla viðbragða var Sirrý beðin um að lengja þáttinn um klukkutíma. Svo margir voru á línunni sem biðu. Og Sirrý varð að sjálfsögðu við því og allt leit vel út. En Sirrý heyrði svo af því að Ástþór væri sá sem öllu réði en það sá hún ekki fyrir. En það er svo með þá sem gæddir eru spádómsgáfu, það er ekki á þeirra færi að spá fyrir sjálfum sér. „En þetta lagðist alltaf illa í mig. Og fyrsta kvöldið sem ég átti að fara í útsendingu var eins og reynt væri að koma í veg fyrir að ég færi á Lýðvarpið. Ég læsti lyklana mína inni í borðstofu og þar voru spáspilin mín. Ég hringdi á lásasmið en hann gat ekki komið fyrr en klukkan tólf en ég átti að vera mætt í útsendingu klukkan níu. Þannig að ég greip með mér spil sem ég hef ekki spáð með. Það gekk svo sem ágætlega en ég kem þarna ekki meir,“ segir Sirrý sem nú situr heima og hugsar næstu skref. Ástþór Magnússon býr nú um stundir á Marbella á Spáni en framkvæmdastjóri Lýðvarpsins til skamms tíma var Gunnar Kristján Steinarsson. Hann er einnig hættur og segir því svo farið með flesta: „Ég pakkaði saman og labbaði út þegar Ástþór gaf út þá yfirlýsingu í síðustu viku að hann ætlaði ekki að borga einum né neinum neitt. Eftir standa í dagskránni þeir sem voru með honum í framboði,“ segir Gunnar. Hvort Sirrý snúi aftur á öldur ljósvakans og þá á Sögu er óvíst því Arnþrúður Karlsdóttir er þegar búin að ráða aðra spákonu á stöðina – Siggu drottningu – eða frú Sigríði Júlíusdóttur sem að sögn Arnþrúðar ætlar að gefa fólki sínar persónulegu lottó-tölur sem hún reiknar út frá fæðingardegi viðkomandi. jakob@frettabladid.is
Mest lesið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Lífið Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Lífið Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Lífið Snæddi með furstanum af Mónakó Lífið Málarameistari afhjúpar algengustu mistökin í sumarverkefnunum Lífið samstarf Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Menning Landslið íslenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar Tónlist Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Lífið Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Lífið Fleiri fréttir „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Sjá meira