Ökufantur bar við minnisleysi þegar hann ók á par 11. febrúar 2009 15:23 Klessti framan á par og bar við minnisleysi. Mynd tengist frétt ekki beinlínis.
Karlmaður á fertugsaldri var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi, en fresta skal fullnustu refsingar í tvö ár frá niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur. Maðurinn var dæmdur fyrir að aka undir áhrifum þunglyndis- og svefnlyfja auk áfengis, yfir á öfugan vegarhelming við Straum við Bröndukvísl, þar sem hann ók beint framan á bifreið pars sem þar átti leið hjá. Slysið átti sér stað í desember 2007. Áður en það átti sér stað ók hann á húsnæði bensínstöðvarinnar N1 í Ártúnsholti. Sjálfur ber maðurinn við minnisleysi varðandi áreksturinn á parið. Konan slasaðist verr en unnusti en samkvæmt læknisvottorði hlaut hún vægt samfallsbrot á þriðja lendarhrygg, tognun á hálsi auk þess sem hún marðist. Þá þurfti hún að dvelja á spítala í tvær vikur. Unnusti hennar fékk bakverki sem höfðu áhrif á nám hans en hann lagði stund á smíði. Sjálfur var hann óviss hvort hann þyrfti að hætta námi sökum meiðslanna. Maðurinn játaði greiðlega vegna hlut ákærunnar varðandi árekstur við bensínstöðina en neitaði að hafa, sökum ónógrar aðgæslu, verið valdur að árekstrinum við bifreið parsins og þeim meiðslum sem parið hlaut. Að auki vildi ökufanturinn meina að karlmaðurinn, sem ók bílnum, bæri sjálfur hlut að ábyrgð vegna slyssins. Dómari var ekki sammála því og fann manninn sekan um alvarlegt brot á umferðarreglum og að hafa sýnt af sér stórfellt gáleysi. Var því niðurstaða dómsins að maðurinn greiddi parinu fimm hundruð þúsund krónur samanlagt, auk málskostnaðar þeirra beggja. Þá þarf maðurinn að greiða 160 þúsund krónur í sekt auk þess sem hann er sviptur ökuleyfi í tvö ár.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira