Í hörku formi og æfir daglega 20. nóvember 2009 06:00 Friðrika æfir daglega í World Class, Laugum og gengur reglulega á fjöll. Hún segir hreyfinguna engan lúxus, heldur lífsnauðsyn. Fréttablaðið/Vilhelm „
Ég byrjaði að æfa á fullu fyrir svona ári síðan og sökkti mér þá í þetta,“ segir Friðrika Hjördís sjónvarpskokkur og þáttastjórnandi Wipe out. Óhætt er að segja að Friðrika sé í fanta formi, enda æfir hún daglega í Laugum World Class og gengur reglulega á fjöll. „Ég mæti eiginlega bara til að geta borðað meira. Mér finnst hrikalega gott að borða og er mikill nautnaseggur svo ef ég mætti ekki veit ég ekki hvar þetta myndi enda,“ segir Friðrika og hlær, en viðurkennir að með aukinni líkamsrækt kalli líkaminn á hollari mat. „Ég fer ekki eftir neinu prógrami og hef engan sérstakan metnað fyrir því að vera með eitthvað „sixpack. Þetta er ekki eitthvað átak hjá mér heldur hluti af mínu lífi. Svo er þetta líka bara svo gott fyrir sálina,“ útskýrir Friðrika og segist hafa litla trú á skyndikúrum. „Ef fólk ætlar að koma sér í gott form er þetta bara spurning um að borða skynsamlega og æfa meira.“ Sýningar á Wipe out hefjast 11. desember og aðspurð segist Friðrika vera orðin spennt að sjá útkomuna. „Þetta leggst mjög vel í mig og ég veit að það eru margir sem bíða spenntir eftir að horfa. Það góða við þessa þætti er að það eru svo margir að ögra sjálfum sér. Við erum alltaf að passa okkur að gera okkur ekki að fíflum, en þarna er fólk að fara út fyrir þægindahringinn, sem gerir þetta svo skemmtilegt,“ segir hún. -ag
Mest lesið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Sjá meira