Þorvaldur Árnason: Þetta var alveg hrikalega ódýrt víti Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. september 2009 17:01 Þorvaldur Árnason skoraði sín fyrstu mörk í Pepsi-deildinni í sumar.
Stjörnumaðurinn Þorvaldur Árnason opnaði markareikninginn sinn í Pepsi-deild karla á Vodafone-vellinum í dag þegar hann skoraði tvívegis í 3-3 jafntefli við Val. „Við áttum klárlega að vinna þennan leik. Við vorum svolítið kærulausir í fyrri hálfleik en við vorum frábærir í seinni hálfleik og sóttum látlaust. Við hefðum geta skorað haug af mörkum. Fyrir utan þessi tvö mörk þá klúðraði ég líka mjög góðum færum eins og fleiri í liðinu gerðu líka. Það eru því mikil vonbrigði að koma aðeins með eitt stig héðan," sagði Þorvaldur. „Það er mjög gott að skora og maður fær meira sjálfstraust við það. Ég spilaði fyrstu leikina á tímabilinu og náði ekki að skora. Það voru aðrir að skora þá og við vorum að vinna leikina þannig að ég var ekki að stressa mig á því þá. Svo lenti maður í meiðslum og er búinn að missa af mörgum leikjum," sagði Þorvaldur Árnason sem skoraði sín fyrstu tvö mörk á tímabilinu. Stjörnumenn voru mjög ósáttir með vítaspyrnudóminn sem færði Valsmönnum jöfnunarmarkið. Þeir voru líka í miklu minnihluta á vellinum sem áttuðu sig á hvað Gunnar Jarl Jónsson var að dæma. „Eins og ég sá þetta, þá voru þetta bara tveir menn að berjast um boltann. Menn eru að toga í hvorn annan í teignum og það gerist í hvert einasta skiptið sem boltinn kemur inn í boxið. Mér fannst þetta alveg hrikalega ódýrt víti en það kemur kannski betur í ljós í Sjónvarpinu. Við erum samt gríðarlega svekktir að fá svona víti dæmt á okkur," sagði Þorvaldur og lukkan hefur ekki verið í liði með Stjörnunni í vítateignum í sumar. „Ég veit ekki hvað við erum búnir að fá mörg víti á okkur og á sama tíma erum við ekki búnir að fá eitt víti í allt sumar sem er með hreinum ólíkindum. Svona er þetta bara, við verðum að taka því og reyna að láta það ekki pirra okkur," sagði Þorvaldur.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Musiala hneig niður í annað skipti á fjórum dögum vegna galla í taugakerfi Fótbolti Einar mölbraut hendurnar á hlaupahjóli en átti magnað EM Sport Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Handbolti Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Enski boltinn Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Körfubolti Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Enski boltinn „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Enski boltinn Williams mun spila í einliða leik á Opna bandaríska risamótinu Sport Dagskráin í dag: Upphitun fyrir enska boltann Sport Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Hvetur fólk til að sjá „skemmtilegasta Keflavíkurlið í mörg ár“ Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Kveðja Bjarna með miklum söknuði „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Sjáðu mörkin: Methafinn nýtti löngu köstin og Róbert elskar að mæta Stjörnunni Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar nálgast annað sætið Sjóðheit Ída Marín kveður FH Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu „Þetta gekk eins og í sögu“ „Leiðinlegt að segja það en þetta er svo mikið af einstaklingsmistökum“ „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ „Gott að bjarga sjálfum sér og verja þetta“ „Gylfi skorar af vítapunktinum, það vita það allir“ „Langar bara að verða betri í fótbolta“ Helgi Guðjóns: Tökum eldgömlu klisjuna um einn leik í einu Uppgjörið: ÍBV - ÍA 1-3 | Með þrjú stig upp á fasta landið Uppgjörið: FH - Víkingur R. 2-4 | Fyrsta tap FH í áttatíu daga Uppgjörið: KR – Breiðablik 3-3 | Stig sem skilur lítið eftir sig Jón Daði kvaddi á sama degi og Viðar skoraði fimm „Horfum bara á að enda tímabilið í topp sex“ „Þurfum að læra að spila leiki af þessari stærðargráðu“ „Við þurfum að gefa meira í þetta maður“ „Held að þetta hafi verið góð auglýsing fyrir Bestu deild kvenna“ Uppgjörið: FH-Breiðablik 0-3 | Meistaraafgreiðsla Blika í toppslagnum Uppgjörið: Þór Ak.-Keflavík 0-2 | Fyrsti útisigur Keflavíkur í 99 daga Sjá meira