Götuljós loga lengur í Garðabæ en Reykjavík 17. desember 2009 15:55 Úr myndasafni. Mynd/Hörður Sveinsson
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, fór þess á leit við Orkuveitu Reykjavíkur í morgun að götulýsing í Garðabæ yrði strax færð aftur í fyrra horf. Hann segir að öryggi fólks vegi þyngra en sparnaður. Orkuveitan hefur þegar brugðist við og því loga götuljósin lengur í Garðabæ frá deginum í dag, að fram kemur í tilkynningu frá upplýsingarstjóra Garðabæjar. Orkuveitan hóf tilraun í haust sem hafði í för með sér sér styttri lýsingartíma en verið hefur á veturna. Tilraunin fól í sér að viðmiðun við dagsbirtuna var breytt úr 50 lux í 20 lux, sem er það viðmið sem tíðkast meðal annars í Noregi. „Það þýðir að jafnaði að það slökknar fyrr á götuljósunum á morgnana og kviknar seinna á þeim á kvöldin. Þessi tilraun var gerð að kröfu Reykjavíkurborgar. Upphaflega átti hún að standa til 1. nóvember en Reykjavíkurborg ákvað að framlengja hana til 1. júni 2010," segir í tilkynningunni. Gunnar segir að öryggi vegfarenda vegi þyngra en hugsanlegur sparnaður. „Garðabær vill tryggja íbúum sínum þá öryggislýsingu sem við erum vön og höfum alist upp við. Ég tel ekki hægt að miða við erlenda staðla í þessu samhengi. Aðstæður eru aðrar hér og veðurfar ólíkt því sem er annars staðar á Norðurlöndunum. Ég tel engan veginn forsvaranlegt að gera tilraunir með jafn brýnan öryggisþátt og götulýsing er hér í mesta skammdeginu," er haft eftir Gunnari í tilkynningunni. Samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitunni hefur viðmiðun götulýsingar í Garðabæ nú þegar verið breytt í fyrra horf. Ljósin munu því kvikna fyrr í Garðabæ í dag og loga lengur fram eftir degi á morgun en annars hefði verið.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Innlent Var látin í sólarhring áður en hún fannst Erlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Lindsey Graham er látinn Erlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Fleiri fréttir Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Sjá meira