Meintur ritstuldur á Bifröst í rannsókn 19. desember 2009 05:30
Yfirstjórn Háskólans á Bifröst rannsakar nú meintan ritstuld lögfræðings sem útskrifaðist frá skólanum árið 2008. Maðurinn er grunaður um að hafa stolið lokaritgerð í lögfræði við háskólann. „Það hefur komið upp mál sem hefur aldrei gerst hér áður og við erum að skoða það," segir Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst. Málið kom upp í sumar og stendur rannsókn háskólans enn yfir. Ágúst telur líklegt að niðurstöður fáist bráðlega, en vill ekki tímasetja þær nánar. „Það er grunur um ritstuld sem þarf að skoða mjög vandlega, og það er það sem við erum að gera," segir Ágúst. „Þetta tekur bara sinn tíma, það er farið mjög vandlega yfir þetta og gætt að öllum formreglum." Ágúst vill ekki segja til um hverjar afleiðingarnar gætu orðið komi í ljós að um ritstuld sé að ræða. „Ég get ekki gefið mér neitt á þessu stigi málsins. Þetta hefur aldrei komið upp hjá okkur aftur, en við tökum þetta föstum tökum og lítum þetta alvarlegum augum," segir Ágúst. Spurður hvort ekki sé alvarlegt mál ef maður starfi sem lögfræðingur á meðan mál hans séu í rannsókn segir Ágúst: „Við lítum málið alvarlegum augum, ég get ekki orðað það neitt öðruvísi. Við tökum líka á því þannig." Ágúst bendir á að hliðstæð mál hafi komið upp í öðrum skólum. Mál af þessu tagi séu farin að verða meira vandamál í háskólum hérlendis og erlendis með vaxandi netnotkun. Það breyti þó engu um alvarleika málsins. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Innlent Var látin í sólarhring áður en hún fannst Erlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Sjá meira