Innlent

Umferðarslys og sjálfsvíg algengustu dánarorsakir

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Umferðarslys eru algengasta dánarorsök íslenskra kvenna á aldrinum 17-26 ára, samkvæmt samantekt sem Umferðarstofa hefur gert. Samantektin sýnir annarsvegar dánarmein ungs fólks á Íslandi á aldrinum 17 - 26 ára og hinsvegar dánarmein fólks á aldrinum 27 - 36 ára. Í henni er stuðst við upplýsingar frá Hagstofunni en jafnframt er stuðst við tölur úr slysaskrá Umferðarstofu á 10 ára tímabili frá 1999 til 2008.

Niðurstöðurnar sýna að umferðarslys er tvöfalt algengari orsök hjá konum á aldrinum 17-26 ára en sjálfsvíg sem er næst algengasta orsök. Sextán konur í þessum aldurshópi létust í umferðarslysum en helmingi færri þ.e. 8 af völdum sjálfsvíga. Hjá ungum karlmönnum eru sjálfsvíg hinsvegar algengasta dánarorsök eða 71 tilfelli en umferðarslys koma þar næst á eftir í 45 tilfellum. Það eru mun fleiri karlmenn eða 195 sem létu lífið í þessum aldurshópi en konurnar voru 61. Ekki er mikill munur á hlutfallslegri tíðni dauðsfalla af völdum umferðarslysa innan hvors hóps fyrir sig en þau eru um fjórðungur hjá báðum kynjum.

Krabbamein og sjálfsvíg algengasta dánarorsökin hjá 27-36 ára

Þegar tölur um dánarmein beggja kynja á aldrinum 17 - 26 ára eru lagðar saman kemur í ljós að það eru mestar líkur á að ungt fólk deyi af völdum sjálfsvíga og umferðarslysa. Þegar eldri hópurinn er skoðaður, þ.e. 27 - 36 ára er skoðaður, kemur hinsvegar í ljós að mikil breyting á sér stað hvað varðar helstu dánarorsakir í samanburði við yngri hópinn. Þar er krabbamein orðið næst algengasta dánarmeinið í 50 tilfellum en „sjálfsvíg og vísvitandi sjálfsskaði" er í 60 tilfellum enn algengasta dánarmeinið. Í eldri hópnum eru umferðarslys þriðja algengasta orsök með 26 tilfelli en þau voru 61 í yngri hópnum.

Samtals eru umferðarslys og sjálfsvíg dánarmein í 55% tilfella í yngri hópnum en 38% tilfella eldri hópsins. Það er því ljóst að með markvissu og víðtæku átaki til fækkunar umferðarslysum og sjálfsvígum væri hægt að auka lífslíkur fólks í þessum aldurshópum til muna - sérstaklega yngri hópsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×