Kaupir bækur af sjálfum sér fyrir stuðningsaðila Barnaspítalans Breki Logason skrifar 10. mars 2009 13:53
Góðgerðarfélagið Stoð og styrkur hefur undanfarið hringt í einstaklinga og beðið um fjárframlög fyrir Barnaspítala Hringsins. Söfnunin er ekki á vegum Hringsins heldur er gerð í samráði við stjórnendur Barnaspítalans. Karl Helgason forsvarsmaður góðgerðarfélagsins segist hafa unnið í sjálfboðavinnu fyrir félagið frá árinu 1998. Þeir sem leggja hærri upphæð en 2.500 krónur í söfnunina fá bók sem þakklætisvott. Góðgerðarfélagið kaupir bækurnar af Bókaútgáfu Æskunnar, sem er að hluta til í eigu Karls Helgasonar. Laufey Gunnarsdóttir sem er ein af hinum svokölluðu Hringskonum segir félagið ekki stunda það að hringja í einstaklinga og biðja um fjárframlög. Hún hafi hinsvegar heyrt af umræddri söfnun og fengið fjölda fyrirspurna um hvort góðgerðarfélagið starfi á þeirra vegum. Svo sé hinsvegar ekki. „Á okkar vegum er sjóður sem heitir Barnaspítalasjóður Hringsins og enginn safnar í hann án okkar vitundar," segir Laufey. Hún segir að þegar farið var í að kanna málið hafi komið í ljós að fyrirtækið Stoð og styrkur tæki reglulega að sér að safna í tækjasjóð Barnaspítlans. Hún segist einnig hafa heyrt að fólk á Barnaspítalanum sé ekki alveg sátt við tímasetningu söfnunarinnar vegna ástandsins í þjóðfélaginu. Söfnunin stefnir í 10 milljónir „Þessi tími er auðvitað almennt séð mjög erfiður en við létum kanna þetta og fólk getur vel hugsað sér að styrkja svona starfsemi á þessum tímum. Inni á milli er samt auðvitað fólk sem kann að taka þetta illa upp, við reynum þá bara að hressa það fólk við," segir Karl. Karl segir Styrk og stoð hafa styrkt fjölda félaga og nefnir þar Heilaheill og Neistann sem félagið safnaði hátt í fimmtán milljónir fyrir. Hann segir söfnunina fyrir Barnaspítalann nú stefna í hátt í 10 milljónir. Sjálfur segist hann alfarið starfa fyrir félagið í sjálfboðavinnu en þegar hringja þarf í svo margt fólk þurfi að fá úthringifyrritæki til verksins. Þeim aðilum er greitt fyrir sína vinnu og eins þarf að greiða sendingarkostnað og innpökkun á gjöfum sem fólk fær. Pökkunin fer fram hjá Ási en þar eru það þroskaheftir sem sjá um að pakka inn. Bækur á lágu verði Gjafirnar sem fólk fær eru í formi bókar en allir sem gefa meira en 2.500 krónur í söfnunina fá bók sem þakklætisvott. „Flestar bækurnar koma frá Æskunni bókaútgáfu sem ég starfa fyrir, en er með góðgerðarfélagið í sjálfboðavinnu." Karl er hinsvegar ekki einungis starfsmaður Æskunnar því hann ásamt fjölskyldu sinni er einn af eigendum bókaútgáfunnar. Félagið Ofanleiti ehf. sem er í eigu Sigurjóns Sighvatssonar kvikmyndagerðarmanns og Öflun ehf. eru einnig eigendur útgáfunnar. Karl segir að Stoð og styrkur hafi reyndar sjálft gefið út bækur en núna sé mun ódýrara að fá bækur á lágu verði frá Æskunni. Bækurnar séu yfirleitt keyptar undir kostnaðarverði. Karl segir söfnunina fara fram í beinu samstarfi við yfirlækna hjá Barnaspítalanum og upphæðirnar sem hver og einn sé að gefa séu lágar en margar. Undanfarin ár hafi aðallega verið leitað til fyrirtækja en núna hafi verið ákveðið að hringja í einstaklinga sem margir hverjir hafi verið ánægðir með að geta lagt góðu málefni lið. Ekki náðist í forsvarsmenn Barnaspítalans við vinnslu fréttarinnar.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Fleiri fréttir Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Sjá meira