Vikið af vegi sáttar við lagabreytingar 10. mars 2009 04:45 Málin rædd. Steingrímur J. Sigfússon og Jóhanna Sigurðardóttir stinga saman nefjum í þinginu. Að þeirra undirlagi er vikið frá hálfrar aldar hefð um að góð pólitísk sátt sé um breytingar á stjórnarskrá. fréttablaðið/gva
Nýmæli er, í síðari tíma stjórnmálasögu, að ríkisstjórn beiti sér fyrir breytingum á stjórnarskrá og lögum um Seðlabankann og kosningar án þess að um þær ríki samstaða allra flokka. Seðlabankalögunum var breytt í síðustu viku og fyrir dyrum stendur að breyta bæði stjórnarskrá og kosningalögum. Síðast voru gerðar meiri háttar breytingar á lögum um Seðlabankann árið 1991 og þar áður árið 1986. Í bæði skiptin var um þær þverpólitísk sátt. Sem þekkt er voru breytingarnar nú gerðar í andstöðu við Sjálfstæðisflokkinn. Fyrir þinginu liggja frumvörp um breytingu á kosningalögunum annars vegar og stjórnarskránni hins vegar. Að þeim standa forystumenn allra flokka fyrir utan Sjálfstæðisflokkinn. Hálf öld er síðan stjórnarskránni var síðast breytt í óþökk þingflokks. Framsóknarmenn voru þá andvígir breyttri kjördæmaskipan. Síðan hefur stjórnarskránni verið breytt sex sinnum og ávallt í þverpólitískri sátt þó einstakir þingmenn hafi greitt atkvæði gegn breytingum. Á móti kemur hins vegar að rétt fyrir kosningarnar 2007 lögðu formenn þáverandi stjórnarflokka; Geir H. Haarde Sjálfstæðisflokki og Jón Sigurðsson Framsóknarflokki fram frumvarp um að fært yrði í stjórnarskrá að náttúruauðlindir skyldu vera þjóðareign. Því var vísað til stjórnarskrárnefndar þar sem það dagaði uppi. bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Selja sinn sögufrægasta grip til að lifa af sumarið Innlent Segir Íran hafa farið yfir strikið Erlent Fregnir af eldsvoða á flugvelli í Teheran Erlent Sofnaði undir stýri og svipt bílprófinu í hálft ár Innlent Benz brann í Breiðholti Innlent Vilja milljarð frá First Water sem hafnar vanefndum Innlent Minnihlutinn mætir ekki á morgun Innlent Þórdís kemur Þorgerði til varnar: „Birtingarmynd pólitískra öfga“ Innlent Íranir hefna sín og eldflaugar fljúga í Tel Aviv Erlent Sprengjum og öxum beitt við heimili til að kúga út fé Innlent Fleiri fréttir Selja sinn sögufrægasta grip til að lifa af sumarið Sofnaði undir stýri og svipt bílprófinu í hálft ár Benz brann í Breiðholti Minnihlutinn mætir ekki á morgun Vilja milljarð frá First Water sem hafnar vanefndum Allt á suðupunkti á Alþingi, árásir í Íran og fágætur flygill Selma nýr skólameistari á Króknum Hafa enga hugmynd hve lengi segulómstækið verður ónothæft Þórdís kemur Þorgerði til varnar: „Birtingarmynd pólitískra öfga“ Skúringatæki pikkfast utan á eina segulómtækinu á Hringbraut Stofnandi Viðreisnar segir Daða seilast í vasa almennings Burðardýr með þrettán kíló í farangrinum hlaut þungan dóm Sverrir Jónsson ráðinn skrifstofustjóri Alþingis Þyrlan afturkölluð og hinn slasaði sóttur á björgunarskipi Draga úr framkvæmdum um meira en fjórðung vegna rekstrarstöðvunar PCC Kæra utanríkisráðherra fyrir landráð Segja skellt á Skattinn og að „ofbeldi“ viðgangist í nefndinni „Kanntu ekki að skammast þín?“ Hrósaði meirihlutanum og sendi þeim gamla pillu Árásir á Íran og átök á Alþingi Lögðu hald á töluvert magn fíkniefna og milljónir í reiðufé Ísland fyrsta landið til að dreifa Naloxone í öll fangelsi Segir reikninginn ekki enda hjá eldri borgurum Nemandinn sem stakk Ingunni nítján sinnum: Segir „tæknilega séð mögulegt“ að hann geri það aftur Kínverskur dómur um banaslys skipti engu máli og TM slapp Landlæknir vísar málflutningi Kalla Snæ á bug Þingmenn stjórnarandstöðu ræddu bókun 35 í nærri hálfan sólarhring Tilkynnt um barn með vopn og vímuefni Jón Óttar kærir Ólaf Þór fyrir rangar sakargiftir Gömlum Flugfélagsþristi bætt við á Sólheimasand Sjá meira