Straumur gagnrýnir FME 10. mars 2009 05:00 William Fall sagði upp sem forstjóri Straums Burðaráss í gær.
Forsvarsmenn Straums Burðaráss eru afar ósáttir við tildrög þess að ríkið yfirtók bankann. Atburðarásin, eins og heimildarmenn innan bankans lýsa henni, er í öllu önnur en Fjármálaeftirlitsins íslenska (FME) og Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra. Samkvæmt heimildum innan úr Straumi spurðist breska fjármálaeftirlitið (FSA) fyrir um stöðu bankans á miðvikudag og getu hans til að standa við skuldbindingar í þessari viku. Straumur svaraði því til að vandalaust væri að standa við skuldbindingar bankans og vísaði á FME sem eftirlitsaðila bankans á Íslandi. Er fullyrt að þegar FSA leitaði til FME um stöðu Straums hafi fengist þau svör að FME vissi ekki hver staða bankans væri. Þetta hafi gert stjórnendur innan FSA órólega sem hafi talið að Straumur starfaði eftirlitslaus. Í framhaldinu ræddi William Fall, forstjóri Straums, við FSA sem lét málið niður falla. Þá fyrst hafi FME tekið að grennslast fyrir um málið. Straumur og FME funduðu á föstudag. Á laugardag bættist Seðlabankinn í hópinn. Gunnar Haraldsson, stjórnarformaður FME, segir að fjármálaeftirlitum beggja landa hafi verið ljóst um nokkurn tíma hversu staðan var slæm. „Ég skil ekki hvernig svona saga fer af stað. FME fylgdist mjög vel með eiginfjárstöðu og lausafjárstöðu fyrirtækjanna og samskipti okkar við FSA hafa verið með miklum ágætum." Innan úr Straumi koma einnig þær upplýsingar að á laugardag hafi stjórnendum Straums gefist kostur á því að gera grein fyrir stöðu bankans með embættismönnum frá ráðuneytum fjármála og viðskipta, seðlabankastjóra og þremur fulltrúum FME. Til þessa verks hafi fengist rúmur klukkutími. Þar hafi verið sýnt fram á að bankinn gæti greitt allar skuldir sem fyrirsjáanlegt væri að standa þyrfti skil á. Þetta segir Gunnar jafnframt rangt. „Ég fullyrði að þetta er ekki rétt og mér finnst mjög skrítið ef aðilar, sem telja sig hafa góðar heimildir um atburðarásina, halda þessu fram. Það setur að mér ugg yfir þessu." Steingrímur, kannast ekki við fund skipaðan nefndum aðilum frekar en Gunnar. William Fall hringdi í fjármálaráðherra á sunnudag þar sem stjórn Straums var uggandi yfir framvindu málsins. Þetta staðfestir Steingrímur. Hann kannast hins vegar ekki við að hafa sagt að ráðgjafar hans hafi verið búnir að ráðleggja honum að taka bankann yfir, eins og heimildamenn innan Straums fullyrða. „Hann lýsti sínum viðhorfum og ég meðtók þau. Ég svaraði hins vegar engu til baka enda var það ekki á mínu valdi að ráða þarna niðurstöðu mála." Steingrímur segist hafa fundað með stjórnendum Straums fyrir tveimur vikum þar sem stjórnendur bankans lýstu áhyggjum af stöðu bankans. Það sé jafnframt alfarið FME sem sjálfstæðs stjórnvalds að taka ákvörðun um yfirtöku bankans. - shá
Mest lesið Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Innlent Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Innlent Sagt upp eftir 26 ár á Morgunblaðinu Innlent Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Erlent Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Innlent Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Innlent „Markmið mitt var bara að ná byssunni af honum“ Erlent Milljón dalir eða meira fyrir náðun Erlent Gestir á Edition stukku út á náttfötunum Innlent Hér verða áramótabrennur á Gamlársdag 2025 Innlent Fleiri fréttir Fimm með vanlíðan komast í Skjólshús í tvær vikur Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Sagt upp eftir 26 ár á Morgunblaðinu Kominn tími á gos og Veðurstofan öllu viðbúin Sýknuð af ólöglegum innflutningi lyfja vegna rangra upplýsinga Lyfjastofnunar Þriggja hatta Inga segir engin ráðherraskipti í pípunum Desember að komast á lista yfir þá allra hlýjustu Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Samið um Skjólshús og gos gæti komið á hverri stundu Hér verða áramótabrennur á Gamlársdag 2025 Björn Ingi leiðir ekki Miðflokksmenn í borginni Gestir á Edition stukku út á náttfötunum Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Óvenju mikið að gera hjá slökkviliðinu Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Þrír réðust á einn og höfðu af honum farsíma Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri „Rúllandi rafmagnsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Sjá meira