Urðu óvænt að ólöglegum innflytjendum 10. mars 2009 06:00 Tvær þjóðir í einu landi. Fólk af rússneskum uppruna mótmælir í Ríga í mars 2007 meðan Lettar minnast fallinna þjóðhetja. Fyrrnefndi hópurinn, sem er afar fjölmennur í landinu, hefur ekki ríkisborgararétt og það hefur valdið vandamálum hér á Íslandi.nordic photos/afp
Hópur fólks frá Lettlandi og Eistlandi af slavneskum uppruna varð skyndilega réttindalaus hér á landi eftir að upp komst að hann hafði í raun aldrei fengið ríkisborgararétt í sínu heimalandi. Löndin tvö eru innan EES-svæðisins en þar sem slavarnir, sem koma frá fyrrum Sovétlýðveldunum, fá ekki ríkisborgararétt þar njóta þeir ekki réttindanna sem gilda um þegna svæðisins jafnvel þó að þessi hópur hafi búið í Eystrasaltslöndunum í fleiri áratugi. Fólkið fær svokallað útlendingavegabréf sem er afar líkt hinum eiginlegu vegabréfum landanna. Það hefur því komið fyrir að yfirvöld hér á landi sem og vinnuveitendur hafi ekki gert sér grein fyrir mun þessara tveggja vegabréfa. Ingibjörg Hafstað sem er rússneskumælandi og starfar í Alþjóðahúsinu segir að fjöldi slava frá þessum löndum hafi leitað til sín eftir að hafa misst vinnu og dvalarleyfi eftir að upp komst að þeir væru með útlendingavegabréf. „Það hefur jafnvel verið fólk sem er með börn í skóla, er í vinnu og búið að koma sér vel fyrir en er svo allt í einu gert að fara úr landi,“ segir hún. Ekki nema um 40 Lettar og Eistlendingar af slavneskum uppruna eru með gild dvalarleyfi hér á landi. „Ég myndi segja að það væru svona um fimm til tíu slík tilfelli sem hafi komið upp á borð hjá okkur á síðustu misserum,“ segir Haukur Guðmundsson, forstjóri Útlendingastofnunar. „En við höfum ekki tekið hart á atvinnurekendum sem hafa ráðið fólkið til vinnu þó svo að í strangasta skilningi laganna séu þeir í raun að brjóta lög. Við höfum talið nærtækara að líta svo á að þarna sé um afsakanlegt gáleysi að ræða frekar en eitthvað saknæmt.“ Mörður Árnason, varaþingmaður Samfylkingarinnar hefur lagt fram fyrirspurn á Alþingi til dómsmálaráðherra varðandi réttarstöðu þessa hóps hér á landi sem og í löndum Evrópusambandsins. Einnig spyr hann hversu oft málefni manna úr þessum hópi hafi komið til kasta Útlendingastofnunar frá því að Eystrasaltsríkin urðu hluti af EES svæðinu og hver afdrif þeirra mála urðu. „Ég veit til þess að það er tekið mýkra á þessum hópi í ríkjum Evrópusambandsins og því væri gott að fá nánari útlistun á því og athuga hvort við gætum farið að þeirra fordæmi,“ segir hann. Mikill fjöldi slava býr í Eystrasaltslöndunum þremur en Litháar hafa veitt öllum þegnum sínum af slavneskum uppruna jafnan ríkisborgararétt. Haukur segir að málin þokist í þá átt í Eistlandi en síst í Lettlandi. Hann segir enn fremur að um 40 manns úr þessum hópi hafi gild dvalarleyfi hér á landi.jse@frettabladid.is Haukur Guðmundsson
Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira