Mikið tilstand við að leiðrétta frétt 10. mars 2009 05:15 Ólafur ragnar grímsson
Talsvert tilstand varð í íslensku stjórnsýslunni eftir að viðtal við Ólaf Ragnar Grímsson forseta birtist í þýska Financial Times 10. febrúar. Fyrirsögn viðtalsins var á þá leið að innstæður Þjóðverja hjá Kaupþingi væru glataðar og var haft eftir Ólafi að þar sem Íslendingar hefðu tapað öllu væri ekki hægt að bjóða þeim upp á að þurfa að borga tap þýskra sparifjáreigenda. Fréttin breiddist fljótt út um alla helstu fjölmiðla Þýskalands. Áhyggjufullir innstæðueigendur kröfðu þýsk ráðuneyti um aðgerðir og málið var rætt í fjárlaganefnd þýska þingsins. Fjölmargir þýskir blaðamenn leituðu viðbragða víða, meðal annars til utanríkisráðuneytis Íslands og sendiráðsins í Berlín. Utanríkisráðuneytið, viðskiptaráðuneytið, forsetaembættið og skilanefnd Kaupþings undirbjuggu sameiginlega viðbragðsáætlun. Fólst hún fyrst og fremst í yfirlýsingum sem dreift var til fjölmiðla víða um heim. Inntak þeirra var að rangt væri eftir forsetanum haft; Ísland ætlaði að standa við samkomulag sem gert var við Evrópusambandið og nokkur aðildarríki þess í nóvember. Þýska sendiráðinu í Reykjavík var gerð grein fyrir hinu sanna í málinu, sendiherra Íslands í Berlín ræddi við fulltrúa þýsku fjármála- og utanríkisráðuneytanna og forsetinn veitti fjölmiðlaviðtöl. Virðist sem aðgerðir hafi borið árangur því að kvöldi þess dags sem fréttin birtist var nánast ekkert fjallað um málið í þýskum ljósvakamiðlum.- bþs
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Sjá meira