Jóhanna býst við lækkun í næstu viku 10. mars 2009 04:15 Jóhanna Sigurðardóttir
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra gerir ráð fyrir að stýrivextir Seðlabankans verði lækkaðir í næstu viku en næsti vaxtaákvörðunardagur er fimmtudaginn 19. mars. Í utandagskrárumræðum um endurreisn efnahagslífsins á Alþingi í gær sagði Jóhanna allar forsendur fyrir vaxtalækkun. Aukinn trúverðugleiki Seðlabankans leiddi af sér aukinn stöðugleika krónunnar og verðlags og til þess myndi peningastefnunefnd Seðlabankans taka tillit við vaxtaákvörðun. Samhljómur var meðal þingmanna sem þátt tóku í umræðunni um nauðsyn vaxtalækkunar. Enginn gekk þó jafn langt og Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, sem sagði að lækka bæri vextina úr átján prósentum í átta. Birkir J. Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins, hóf umræðuna. Spurði hann ráðherra nokkurra spurninga og auglýsti um leið eftir jákvæðum viðbrögðum við efnahagstillögum Framsóknar-flokksins, einkum tillögunni um flata afskrift skulda. Hlaut hann lítil viðbrögð. Í umræðunum upplýsti Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra að unnið væri að því að treysta undirstöður sparisjóðanna svo þeir gætu orðið máttarstólpi fjármálakerfisins. - bþs
Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Erlent Fleiri fréttir Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Sjá meira