Engin þverpólitísk sátt í sjónmáli Jón Hákon Halldórsson skrifar 14. ágúst 2009 09:44 Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar, reynir hvað hann getur að finna farsæla lausn á málinu. Mynd/ GVA.
Engin þverpólitísk sátt virðist í sjónmáli á Alþingi í Icesave deilunni eftir tíðindi gærdagsins og næturinnar. Þingmenn ríkisstjórnarfllokkanna höfðu vonast til þess að hægt yrði að ljúka umfjöllun um málið í fjárlaganefnd í gær. Nefnd lögfræðinga var fengin til að smíða breytingar á frumvarpi um ríkisábyrgð vegna Icesave með lagalegum og efnahagslegum fyrirvörum við málið. Settist nefndin svo á fund með fjárlaganefnd rétt upp úr klukkan þrjú í gær. Fulltrúar í fjárlaganefnd kynntu svo stöðu málsins fyrir þingflokkunum rétt fyrir kvöldmat og kom þá í ljós að þingmönnum stjórnarandstöðuflokkanna fannst fyrirvararnir ekki ganga nægjanlega langt. Fjárlaganefnd hittist svo aftur um klukkan átta í gærkvöld og fundaði þar til klukkan var langt gengin tvö án þess að niðurstaða fengist í málið. Fjárlaganefnd hittist aftur í hádeginu í dag en þeir stjórnarandstöðuþingmenn sem Vísir hefur talað við telja ólíklegt að sátt náist um málið ef fyrirvarar sem gerðir eru við málið ganga ekki lengra en svo að þeir rúmist innan þess samnings sem hefur verið gerður. Eins og fram hefur komið er hins vegar ekki víst að stjórnarmeirihlutinn þurfi á stuðningi minnihlutaflokkanna að halda ef forysta Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs nær sátt um málið við Ögmund Jónasson, Guðfríði Lilju Grétarsdóttur og Lilju Mósesdóttur. Þau hafa hingað til öll lýst sig andvíg málinu.
Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Innlent „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Erlent Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi Innlent Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Innlent Orbán sakaður um sprengjutilræði Erlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Fleiri fréttir Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Sjá meira