Innlent

Þúsundir flutt á brott vegna eldgoss

Eldfjallið Galeras í Kolumbíu.
Eldfjallið Galeras í Kolumbíu.

Hafist var handa við það í nótt að flytja á brott um átta þúsund manns frá bænum Pasto í suðurhluta Kólumbíu eftir að eldgos hófst í fjallinu Galeras.

Eldgosið hófst á miðnætti að íslenskum tíma og hefur mikil aska fallið á bæinn. Galeras hefur gosið nokkrum sinnum á síðastliðnum áratugum nú síðast í janúar í fyrra. Níu létust þegar Galeras gaus árið 1993.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×