Heimdallur hvetur stjórnina til að draga andann djúpt 7. desember 2009 22:02 Árni Helgason, formaður Heimdalls.
Heimdallur hvetur ríkisstjórnina til að draga andann djúpt í Icesave málinu. Félagið vill að frumvarp ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð vegna Icesave reikninga Landsbankans verði sett í salt í bili. „Augljóst er að Icesave-málið er eitt stærsta mál sem íslenskt stjórnkerfi og íslenskir stjórnmálamenn hafa glímt við. Niðurstaða málsins mun hafa mikil áhrif á efnahagslegan styrk þjóðarinnar næstu áratugina og örlög komandi kynslóða í landinu. Það er því skýlaus krafa að allt verði gert sem í okkar valdi stendur til þess að berjast fyrir okkar málsstað og að kjörnir fulltrúar hefji málið upp úr skotgröfum og flokkapólitík á næstu misserum,“ segir í ályktun Heimdalls. Þar segir að hafa verði hugfast að margt hafi breyst í heiminum frá því í október 2008 og ekki sé sami þrýstingur og áhyggjur í heiminum vegna hugsanlegs allsherjarhruns á fjármálamörkuðum og hafi verið þá. Heimdallur leggur til að í stað þess að afgreiða ríkisábyrgð á Icesave málinu setji stjórnvöld málið í salt í bili og einbeiti sér þess í stað að því að kynna málsstað Íslands með skipulögðum hætti, einkum gagnvart þingflokkum, stjórnvöldum og fjölmiðlum í Evrópu. „Í slíkri kynningu ber að leggja áherslu á þær byrðar og áhættu sem gert er ráð fyrir að örríkið Ísland axli, þá meðferð sem okkur var sýnd með setningu hryðjuverkalaga af hálfu breskra stjórnvalda og með hvaða hætti Alþjóðagjaldeyrissjóðnum hefur verið beitt í málinu.“
Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Fleiri fréttir Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Sjá meira