Óvissa um verktakaframlög valdi vanhæfni borgarfulltrúa Ingimar Karl Helgason skrifar 21. október 2009 14:36 Ólafur F. Magnússon treysti sér ekki til að undirrita siðareglur borgarfulltrúa í gær. Mynd/ Stefán. „
Það verður að teljast bíræfni af hálfu borgarfulltrúa að ætla að setja fögur orð á blað og kalla það siðareglur. Enn er reynt að draga lappirnar við að upplýsa um framlög í prófkjörum til kjörinna fulltrúa," segir Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi, í bókun á borgarstjórnarfundi í gær. Þar voru samþykktar siðareglur borgarfulltrúa með 14 atkvæðum gegn atkvæði Ólafs. Ólafur segir í bókuninni að undirritun borgarfulltrúa á siðareglunum sé ekki pappírsins virði. Flestir borgarfulltrúar séu vanhæfir til að „gegna þeirri skyldu sinni að hlýta ávallt sannfæringu sinni sem kjörnir fulltrúar. Þetta gildir alveg sérstaklega um borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks," segir Ólafur, sem bætir því við, að vegna þessa hafi hann „ekki geð" í sér til að greiða atkvæði með siðareglunum. „Krafan um að borgarstjóri, formaður borgarráðs og aðrir kjörnir fulltrúar meirihlutans leggi spilin á borðið og geri grein fyrir framlögum sem þeir hafa tekið við frá hagsmunaaðilum og verktökum hefur aldrei verið háværari." Í siðareglum borgarfulltrúa er ekkert fjallað um kosningaframlög. Þar segir raunar í 2. grein: „Í störfum sínum er kjörinn fulltrúi bundinn af lögum, reglum og samþykktum Reykjavíkurborgar, sem og sannfæringu sinni. [...] Kjörnir fulltrúar forðast að hafast nokkuð það að sem er þeim til vanvirðu eða álitshnekkis eða sem varpað getur rýrð á störf þeirra eða Reykjavíkurborg."
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Fleiri fréttir Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Sjá meira