Þannig fara hjónabönd í hundana Óli Tynes skrifar 21. október 2009 14:26 Yorkshire Terrier hundar eru afskaplega sætir. Mynd/Netið
Þegar eiginkonan sagði manninum að hún ætlaði út að ganga með hundinn og hitta vinkonur sínar til þess að fá sér kaffisopa, ákvað maðurinn að fara í gönguferð með börnin. Það er enda hlýtt og fallegt á Sikiley á þessum árstíma. Eftir góðan göngutúr voru eiginmaðurinn og börnin á heimleið þegar þau allt í einu heyrðu glaðlegt gelt og ýlfur. Og jú, hinummegin við götuna, fyrir framan litla krá stóð Yokshire Terrier hundurinn þeirra bundinn. Hann dillaði ákaft litla skottinu og hélt áfram að gelta og ýlfra. Fjölskyldan fór náttúrlega yfir götuna til þess að klappa honum og eiginmaðurinn kíkti á gluggann eftir eiginkonu sinni og vinkonum hennar. Konuna sá hann en engar vinkonur. Hinsvegar sá hann mjög vel kráareigandann sem konan var í heitum faðmlögum við. Kráareigandinn var fluttur á sjúkrahús þar sem gert var að sárum hans sem voru sem betur fer ekki alvarleg. Og hjónin? Tja, spyrjið þið hundinn.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Innlent Fleiri fréttir Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sjá meira