Bíræfni bílþjófurinn ákærður vegna brota sinna 8. maí 2009 12:43 Þessum silfurgráa VW Golf árgerð 2003 fékk sá bíræfni að aka til reynslu í nóvember á síðasta ári.
Maður sem sigldi undir fölsku flaggi í nóvember á síðasta ári og gekk meðal annars undir viðurnefninu Bífræfni bílþjófurinn þarf nú að svara fyrir hegðun sína fyrir dómstólum. Maðurinn framvísaði skilríkjum sem hann hafði stolið nokkru áður á bílasölum og fékk að reynslukeyra ýmsar bifreiðar. Bílasölurnar heyrðu síðan lítið í honum og lögregla fór í málið. Hann náðist nokkrum dögum síðar í Borgarnesi. Hann er nú ákærður fyrir að hafa ekið tveimur bifreiðum í heimildarleysi og að hafa stolið hljómflutningstækjum úr annarri bifreið. Málið var þingfest í héraðsdómi Reykjaness í dag. Málið kom upp í nóvember á síðasta ári en nokkuð var fjallað um það hér á Vísi. Upphaf málsins má reyndar rekja til 30.október á síðasta ári þegar hann stal veski frá öðrum manni. Næstu þrjár vikurnar gekk hann undir nafninu Stefán og nýtti sér skilríki mannsins til þess að sigla undir fölsku flaggi. Hann stal hverri bifreiðinni á eftir annarri og tók út vörur og þjónustu fyrir um 90 þúsund krónur á stolið kreditkort. Þar á meðal tók hann út sígarettur fyrir tugi þúsunda, greiddi hótelreikning og greiddi reikning hjá dýralækni. Vísir ræddi við Guðna Daníelsson framkvæmdarstjóra Bílahússins í Njarðvík, en þangað mætti maðurinn og þáði kakó, bakkelsi, og hrósaði hvoru tveggja í hástert. Sagði hann jólakökuna góða og Bílahúsið gott heim að sækja. „Menn launa misjafnlega," sagði framkvæmdarstjórinn við Vísi eftir að ljóst var að maðurinn skilaði ekki ljósgráum VW Golf árgerð 2003, sem hann hafði fengið að reynsluaka. Í kjölfar fréttar Vísis bárust fjölmargar ábendingar og sást til mannsins víða um land. Meðal annars var hann á Akranesi, Hvolsvelli og Laugarvatni. Hann var síðan handtekin í Borgarnesi eins og fyrr segir. Þess er krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Einnig gerir eigandi bifreiðar, sem maðurinn stal bassahátalara, 800 watta hátölurum, Soundstorm magnara, geisladiskamöppu með 30-40 diskum og varadekki úr, kröfu um skaðabætur upp á rúmlega 200.000 krónur.
Tengdar fréttir Stal fjölda bíla með stolnum skilríkjum Bíræfni bílþjófurinn stal veski frá Stefáni Má Haraldssyni þann 30 október síðastliðinn. Frá þeim tíma, eða á nærri þriggja vikna tímabili nýtti hann sér skilríki 19. nóvember 2008 16:11 Bíræfni bílþjófurinn laus úr haldi Bíræfni bílþjófurinn sem lögreglan handsamaði í Borgarnesi í gærmorgun er laus úr haldi. Ekki reyndist grundvöllur til að fara fram á gæsluvarðhald fyrir manninum. Lögreglan vinnur áfram að rannsókn málsins. 20. nóvember 2008 21:00 Bíræfni bílþjófurinn stöðvaður í Borgarnesi Vísir sagði í gær frá manni sem heimsótti Bílahúsið í Reykjanesbæ á laugardaginn. Þáði hann kakó, köku og fékk að reynsluaka silfurlituðum Volkswagen Golf. Var maðurinn hinn viðmótlegasti en bílnum hefur hann enn ekki skilað. Guðni Daníelsson framkvæmdarstjóri Bílahúss segist hafa fengið mikil viðbrögð í kjölfar fréttar Vísis í gær og sést hafi til bílþjófsins víða um land. Lögreglan í Borgarnesi hafði hinsvegar uppi á manninum fyrir stundu. 19. nóvember 2008 13:20 Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Innlent Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Innlent Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu Innlent Fleiri fréttir Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Guðjón skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Íslands Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Enn unnið að myndun meirihluta og gistiskýlinu í Borgartúni lokað Fengu ekki Baldur Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Áratuga fjársvelti námsgagna bitni á skólastarfi á öllum stigum Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu „Það sem við hófum árið 1986 ætlum við að klára árið 2026“ Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Vætusamt veður fram á mánudag Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Sjá meira
Stal fjölda bíla með stolnum skilríkjum Bíræfni bílþjófurinn stal veski frá Stefáni Má Haraldssyni þann 30 október síðastliðinn. Frá þeim tíma, eða á nærri þriggja vikna tímabili nýtti hann sér skilríki 19. nóvember 2008 16:11
Bíræfni bílþjófurinn laus úr haldi Bíræfni bílþjófurinn sem lögreglan handsamaði í Borgarnesi í gærmorgun er laus úr haldi. Ekki reyndist grundvöllur til að fara fram á gæsluvarðhald fyrir manninum. Lögreglan vinnur áfram að rannsókn málsins. 20. nóvember 2008 21:00
Bíræfni bílþjófurinn stöðvaður í Borgarnesi Vísir sagði í gær frá manni sem heimsótti Bílahúsið í Reykjanesbæ á laugardaginn. Þáði hann kakó, köku og fékk að reynsluaka silfurlituðum Volkswagen Golf. Var maðurinn hinn viðmótlegasti en bílnum hefur hann enn ekki skilað. Guðni Daníelsson framkvæmdarstjóri Bílahúss segist hafa fengið mikil viðbrögð í kjölfar fréttar Vísis í gær og sést hafi til bílþjófsins víða um land. Lögreglan í Borgarnesi hafði hinsvegar uppi á manninum fyrir stundu. 19. nóvember 2008 13:20