Fjölmiðlamenn fjölmenna á Alþingi Heimir Már Pétursson skrifar 1. maí 2009 18:59
Tuttugu og einn þingmaður situr nú á Alþingi sem áður hafði gengt störfum í fjölmiðlum. Flestir fjölmiðlamenn eru í þingflokki Samfylkingarinnar og meirihluti þeirra hefur unnið hjá Ríkisútvarpinu. Fjölmiðlafólki á Alþingi fjölgaði um níu við kosningarnar síðast liðinn laugardag, eða úr tólf í tuttugu og einn. Þrjátíu og þrjú prósent þingmanna hafa starfað áður hjá fjölmiðlum. Hjá Framsóknarflokki koma nýir á þing Guðmundur Steingrímsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Hjá Sjálfstæðisflokki voru fyrir Árni Johnsen, Birgir Ármannsson, Jón Gunnarsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir en Tryggvi Þór Herbertsson kemur þar nýr inn. Þráinn Bertelsson Borgarahreyfingunni er landsþekktur fjölmiðlamaður. Samfylkingin á fjölmennasta hóp fyrrverandi fjölmiðlamanna eða níu, sem er tæpur helmingur þingflokksins. Þar koma nýir inn Magnús Orri Schram, Ólína Þorvarðardóttir, Róbert Marshall, Sigmundur Ernir Rúnarsson og Skúli Helgason. Fjórir af fjórtán manna þingflokki Vinstri grænna hafa unnið á fjölmiðlum en enginn nýr bættist við nú í kosningunum. En hvar unnu þessir þingmenn? Langflestir unnu hjá RÚV eða átta. Þau Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Magnús Orri Schram, Ólína Þorvarðardóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Skúli Helgason, Steingrímur J. Sigfússon, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Ögmundur Jónasson. Á Stöð 2 unnu þeir Jón Gunnarsson, Róbert Marshall, Sigmundur Ernir Rúnarsson og Tryggvi Þór Herbertsson. Árni Johnsen, Birgir Ármannsson og Þórunn Sveinbjarnardóttir unnu öll á Morgunblaðinu. Össur Skarphéðinsson var bæði á Þjóðviljanum og Alþýðublaðinu auk þess sem hann ritstýrði DV. Álfheiður Ingadóttir og Árni Þór Sigurðsson unnu bæði á Þjóðviljanum en auk þess vann Árni Þór áður á Ríkisútvarpinu og Björgvin G. Sigurðsson var blaðamaður á Vikublaðinu sem tók við þegar Þjóðviljinn hætti útgáfu.
Mest lesið Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Sjá meira