Erlent

Louvre skilar verðmætum

Zahi Hawas
Zahi Hawas

Frakkar létu í gær undan kröfum Egypta um að ómetanlegum menningarminjum á Louvre-safninu í París yrði skilað aftur til Egyptalands.

Egyptar, með fornleifafræðinginn Zahi Hawas í fararbroddi, hættu í vikunni samstarfi við Louvre-safnið til þess að þrýsta á kröfu sína. Samstarfsslitin hefðu orðið til þess að fornleifauppgröftur á vegum Louvre í Egyptalandi væri í uppnámi.

Frederic Mitterand, menningarmálaráðherra Frakklands, skýrði í gær frá því að egypsku minjarnar yrðu sendar til Egyptalands. Um er að ræða brot úr máluðum veggmyndum úr grafhýsi skammt frá Luxor.

- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×