Þriðjudagar til þrautar Atli Steinn Guðmundsson skrifar 27. október 2009 08:41 Streitan nær hámarki rétt fyrir hádegi á þriðjudegi.
Mánudagar eru alls ekki svo slæmir en versti tímapunktur vikunnar er klukkan 11:45 á þriðjudagsmorgnum ef marka má nýja breska könnun. Næstum því helmingur 3.000 Breta sem tóku þátt í könnun heilsuvöruframleiðandans Bimuno telja mánudag langt í frá versta dag vikunnar þótt jafnan sé rætt um mánudag til mæðu. Það er gamli góði þriðjudagur til þrautar sem er mun nærri lagi og hafa aðstandendur könnunarinnar náð að kortleggja dæmið svo ítarlega að þeir telja sig geta haldið því fram að nákvæmlega stundarfjórðung fyrir hádegi á þriðjudögum upplifi þátttakendur á breskum vinnumarkaði mestu lægð vinnuvikunnar. Mánudagurinn er nefnilega alls ekki svo slæmur þar sem margir verja honum í að kynna sér á Facebook og öðrum samskiptavefjum hvað vinir og vandamenn voru að bralla um helgina. Það kemur þeim í gegnum þann vinnudaginn en hrákaldur raunveruleikinn skellur svo á þeim eins og blaut tuska á þriðjudagsmorgni og nær hryllingurinn hámarki rétt fyrir hádegi. Um þetta eru 53 prósent þátttakenda í könnuninni sammála en tíu prósent segjast fresta verkefnum á mánudegi og skauta gegnum daginn með aðstoð Facebook sem margir vinnuveitendur eru enda farnir að fordæma. Einn af hverjum fimm segist svo vinna fram eftir á þriðjudegi til að bæta upp fyrir leti mánudagsins og koma verkefnastöðunni í eðlilegt horf. Þá finnur rúmlega helmingur aðspurðra fyrir streitu í vinnunni og að meðaltali fara átta klukkustundir á viku í streitu- og tilfinningatengda vanlíðan, sem sagt ígildi heils vinnudags.
Mest lesið Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Innlent Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Innlent Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt Innlent „Auðvitað hef ég íhugað það“ Innlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Innlent Myndir af lífinu um borð í hantaveiruskipinu Erlent Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Innlent Fleiri fréttir Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Einn í lífshættu eftir að bíl var ekið inn í þvögu Myndir af lífinu um borð í hantaveiruskipinu Farage sextánfaldar sætin á sveitarstjórnarstiginu Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Venstre fá umboð til að mynda ríkisstjórn Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu Frederiksen á fund konungs vegna þráteflis Sátu um tóman banka í sex tíma Samföngum Maxwell refsað fyrir að tjá sig Stærsta haldlagning á rafmynt í sögu Svíþjóðar Umsátur í Þýskalandi: Bankarán varð að gíslatöku Segjast aldrei hafa séð Epstein-bréfið meinta áður Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Farage og félagar í Reform margfalda styrk sinn í sveitarstjórnum Englands Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Vopnahléið enn í gildi en alls óvíst um varanlegt samkomulag Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Handtaka kínverskan meintan njósnara í Noregi Þrjár „brúðir ISIS“ ákærðar fyrir hryðjuverk og þrælahald Kortleggja ferðir tuga sem fóru frá borði eftir að sá fyrsti dó Trump enn með tangarhald á Repúblikanaflokknum Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Franskur floti á leið til Persaflóa Segja Írani hafa valdið meiri skaða en menn hafa viðurkennt Segja Evrópu „útungunarstöð“ hryðjuverkaógnarinnar Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Sjá meira