Pólska lánið situr fast vegna Icesave Heimir Már Pétursson skrifar 4. október 2009 18:30
Pólverjar setja ekki skilyrði um lausn Icesavedeilunnar áður en þeir greiða út lán sitt til Íslendinga, en greiða það hins vegar ekki út fyrr en Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lýkur endurskoðun sinni á efnahagsáætlun gagnvart Íslandi. Sjóðurinn ætlar síðan ekki að gera það fyrr en samið hefur verið um Icesave, þannig að lán Pólverja situr fast þangað til. Pattstaðan er því enn hin sama í framkvæmd efnahagsáætlunar ríkisstjórnarinnar og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Icesave reynist alls staðar vera hindrun í vegi. Steingrímur J. Sigfússon og Jan Vincent-Rostowski fjármálaráðherrar Íslands og Póllands skrifuðu í dag undir 630 milljóna zlotý'a lán frá Pólverjum sem greitt verður út í þremur greiðslum sem tengjast þremur endurskoðunum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á efnahagsáætlun Íslands. Afstaða sjóðsins gagnvart Íslandi getur því fryst pólska lánið, þótt Pólverjar setji engin skilyrði um lausn Icesave deilunnar fyrir láninu. Rætt hefur verið um allt að 500 milljón dollara lán frá Rússum og fundaði Steingrímur nú seinnipartinn með aðstoðar fjármálaráðherra þeirra í Istanbúl. Hann segir að gott sé þó að eiga möguleika á láni frá Rússum, en ekki verði tekið meiri lán en þörf sé á. Það sem öllu virðist hins vegar skipta nú er að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn ljúki fyrstu endurskoðun sinni af fjórum á efnahagsáætlun Íslands og fundar Steingrímur með forystumönnum sjóðsins á morgun.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Sjá meira