Nýjung í höfundarrétti 2. desember 2009 05:00 Tryggvi Björgvinsson, formaður FSFÍ, og Eric F. Salzman, stofnandi og stjórnarmaður hjá Creative Commons. Stefnt er að því að fyrstu „almennu hugverkaréttarleyfin“ verði gefin út í byrjun næsta sumars. Fréttablaðið/Valli
Lagadeild Háskólans í Reykjavík, Félag um stafrænt frelsi á Íslandi (FSFÍ) og Creative Commons-samtökin hafa gert með sér samstarfssamning um þýðingu og aðlögun „almenns hugverkaréttar“ á Íslandi. Tryggvi Björgvinsson, formaður FSFÍ, kynnti samstarfið á ráðstefnu sem félagið hélt í gær í Háskólanum í Reykjavík. Almennur hugverkaréttur er þýðing á enska hugtakinu Creative Commons, en það er höfundarréttarleyfi þar sem rétthafi heimilar afnot með eða án ákveðinna skilyrða. Meðal þeirra sem innleitt hafa og nota í miklu mæli slík höfundarréttarleyfi eru vefsíður á borð við WikiPedia-alfræðivefinn og ljósmyndavefurinn Flickr. Meðal frummælenda á ráðstefnu FSFÍ í gær var Eric F. Saltzman, einn upphafsmanna og stjórnarmaður í Creative Commons-samtökunum sem starfa víða um heim. Hann segir stafræna miðlun hafa kallað á nýja nálgun í höfundarréttarmálum og umgjörð til þess að virða mætti höfundarrétt. Með sameiginlegum, eða almennum hugverkarétti, opnuðust víðfeðmir möguleikar á samstarfi og þróun hugmynda og verkefna sem ekki hafi verið til staðar áður. Alfræðivefurinn WikiPedia segir hann að sé skínandi dæmi. Með Creative Commons-leyfum eru heimiluð afnot efnis um leið og uppfyllt eru þau skilyrði sem kveðið er á um í viðkomandi leyfi, svo sem varðandi nafngreiningu, dreifingu, eða hvort nota megi verk í hagnaðarskyni, eða í afleidd verk. Fram kom í máli Tryggva að 52 lönd hafi nú þýtt og aðlagað Creative Commons-hugverkaleyfi að lagaumhverfi sínu, þar á meðal séu mörg Evrópulönd og Norðurlöndin öll, utan Íslands. Átta lönd hafi hins vegar nýlega hafið aðlögunarstarfið. „Og í dag bætist Ísland í þeirra hóp,“ sagði Tryggvi í gær, en hann tekur að sér hlutverk opinbers verkefnisstjóra Creative Commons á Íslandi. Hann gerir ráð fyrir að innleiðing hér taki um hálft ár. „Og er þá undanskilin öll undirbúningsvinna sem þegar hefur farið fram.“ Verkefnið segir Tryggvi að sé einnig unnið í samstarfi við menntamálaráðuneytið, en lagadeild Háskólans í Reykjavík sé lagalegur bakhjarl verkefnisins meðan FSFÍ sjái um kynningarmál og haldi utan um framvindu mála. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Fleiri fréttir Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Sjá meira