Segja ráðningu Davíðs ískyggilega Atli Steinn Guðmundsson skrifar 2. desember 2009 07:06 Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins.
Blaðamannafélög Noregs, Finnlands, Svíþjóðar og Danmerkur segjast hafa þungar áhyggjur af þróun íslenskra fjölmiðla í kjölfar bankahrunsins hér á landi og gagnrýna ráðningu Davíðs Oddssonar í ritstjórastól Morgunblaðsins. Í fréttatilkynningu, sem félögin sendu frá sér sameiginlega og norska ríkisútvarpið NRK fjallar um, segir að fjöldi íslenskra blaðamanna með áralanga reynslu hafi verið rekinn fyrirvaralaust í þeim niðurskurði sem skollið hefur á íslenskum fyrirtækjum og stofnunum upp á síðkastið en slíkt sé veruleg aðför að frelsi fjölmiðla og tjáningarfrelsi í landinu. Fjölmiðlar landsins verði að hafa faglega aðstöðu til að fjalla um hrun íslenska efnahagskerfisins og njóta til þess fullkomins tjáningarfrelsis. Þá segir í tilkynningunni að einkum sé ástandið ískyggilegt hjá elsta dagblaði landsins, Morgunblaðinu, þar sem eigendurnir hafi ráðið fyrrverandi forsætisráðherra sem ritstjóra, sem auk þess var seðlabankastjóri þegar bankahrunið varð, en hann sæti um þessar mundir rannsókn vegna þáttar síns í íslenska bankahruninu. Að lokum lýsa blaðamannafélög Norðurlandanna áhyggjum sínum af Blaðamannafélagi Íslands en núverandi formaður félagsins auk formannsins þar á undan hafi misst störf sín á fjölmiðlum. Norræna blaðamannasambandið hyggst í samvinnu við Blaðamannafélag Íslands halda ráðstefnu hér á landi til að varpa ljósi á og ræða tjáningarfrelsi og ráðningar í stöður á norrænum fjölmiðlum.Lesa má frétt NRK hér.
Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Fleiri fréttir Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Sjá meira