Innlent

Verra að vera Samfylkingarþingmaður eða fréttamaður á Stöð 2?

Bjarni Benediktsson.
Bjarni Benediktsson. Mynd/GVA
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Róbert Marshall, þingmaður Samfylkingarinnar, tókust á um fjárstyrki til flokka sinna á þingfundi í dag. Bjarni velti fyrir sér hvort óþægilegra væri að vera þingmaður Samfylkingarinnar eða fréttamaður á Stöð 2.

Sjálfstæðisflokkurinn upplýsti fyrr í vikunni að flokkurinn ætli að endurgreiða risastyrki Fl Group og Landsbankans til flokksins á næstu sjö árum.

Róbert sagði fulla ástæðu til að hrósa Bjarna og forystu Sjálfstæðisflokksins fyrir skilvísina. Hann vildi jafnframt vita hvort að Bjarni ætlaði að beita sér fyrir því að aðildarfélög og kjördæmaráð Sjálfstæðisflokksins upplýsi um styrki sem þau öfluðu án liðsinnis flokksins líkt og Samfylkingin hafi gert.

Jafnframt óskaði Róbert eftir því að aðrir flokkar legðu spil sín á borðin í þessum efnum.

Bjarni sagði fyrirspurn Róberts á margan hátt ótrúlega ósmekklega. Hann sagði Sjálfstæðisflokkinn hafa tilnefnd sína fulltrúa í nefnd forsætisráðherra þar sem látið verði á það reyna hvort að flokkarnir komi sér saman um upplýsingagjöf aftur í tímann.

Þá benti Bjarni á að Róbert hefði áður starfað sem fréttamaður á Stöð 2 sem væri í „þeirri fyrirtækjagrúbbu" sem jafnframt væri einn helsti styrktaraðili Samfylkingarinnar.

Að lokum sagði Bjarni: „Maður veltir fyrir sér hvort ætli sé óþægilegra að vera þingmaður Samfylkingarinnar eða fréttamaður á Stöð 2 þegar svona rík fjárhagsleg tengsl eru gerð opinber á milli stjórnmálaflokksins og þeirra fjölmiðlasamsteypu sem rekur þá fréttastofuna."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×